Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður atvinnuveganefndar Alþingis, gefur kost á sér í annað sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem haldið verður þann 10. september.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Jón birti nú í kvöld. Í tilkynningunni segir hann að á þeim níu árum sem hann hafi setið á þingi hafi hann tekist á við fjölmörg krefjandi verkefni og aflað sér dýrmætrar reynslu og þekkingar á verkefnum Alþingis, m.a. sem formaður atvinnuveganefndar en undir nefndina „falla öll málefni ferðaþjónustu, iðnaðar, landbúnaðar og sjávarútvegs,“ segir hann í Facebook-færslunni.
„Sjálfur bý ég yfir fjölbreyttri reynslu úr atvinnulífinu m.a. eftir að hafa lengst af rekið eigin fyrirtæki, en einnig í félagsmálum eftir að hafa verið í forystusveit björgunarsamtaka okkar í meira en 20 ár, þar af sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar í 5 ár. Þessi reynsla hefur reynst mér gott vegarnesti á vettvangi þingsins.
Ég vil hvetja alla sjálfstæðismenn í kjördæminu til þátttöku í prófkjöri flokksins og leggja þannig sitt lóð á vogarskálarnar við að velja öfluga einstaklinga til að fara fyrir framboði flokksins í komandi kosningum,“ segir í Facebook-færslu Jóns.