Herdís sækist eftir 5. sætinu

Herdís Anna Þorvaldsdóttir.
Herdís Anna Þorvaldsdóttir. Ljósmynd/Herdís Anna Þorvaldsdóttir

Herdís Anna Þorvaldsdóttir gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fer fram 3. september næstkomandi. Hún sækist eftir 5. sæti á lista flokksins samkvæmt framboðstilkynningu.

Herdís er fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn hverfisráðs Grafavogs auk þess að vera varamaður í
umhverfis- og skipulagsráði, menningar- og ferðamálaráði og skóla- og frístundaráði Reykjavíkur. Herdís er jafnframt formaður efnahags- og viðskiptanefndar Sjálfstæðisflokksins ásamt því að sitja í stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík og framkvæmdastjórn Landssambands Sjálfstæðiskvenna.

Herdís er framkvæmastjóri þyrluþjónustunnar Helo og hefur víðtæka reynslu af atvinnulífinu. Herdís er með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og útskrifaðist með diplóma í alþjóðaviðskiptum frá sama skóla. Herdís leggur áherslu á þau málefni sem tengjast þekkingu og starfsreynslu hennar, eins og efnahagsmál, ferðaþjónustuna, menntamál, samgöngur og umhverfismál.

„Ég tel það vera lykilatriði að viðskiptaumhverfið sé einfalt og aðgengilegt og að fyrirtæki og einstaklingar njóti frelsis til orðs og athafna. Við eigum að halda áfram að einfalda skattkerfið og létta af tollum og skapa hvetjandi umhverfi en ekki íþyngjandi. Ég vil stuðla að aukinni samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og laða að okkur spennandi atvinnutækifæri og mannauð. Við þurfum að halda áfram uppbyggingu innviða, vanda okkur við forgangsröðun í samgöngum með umferðaröryggi í forgrunni og auka valfrelsi í mennta- og heilbrigðismálum. Ég vil auka sveigjanleika í lífeyriskerfinu og endurskoða tekjutengingar. Þá legg ég áherslu á sjálfbærni í umgengni okkar við umhverfið og náttúruna,“ segir Herdís í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert