Efstu sæti Framsóknar í Reykjavík ljós

Lilja Alfreðsdóttir leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
Lilja Alfreðsdóttir leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kosið var í fimm efstu sætin í hvoru kjördæmi vegna framboðs Framsóknarflokksins fyrir komandi alþingiskosningar í Reykjavík, á tvöföldu kjördæmaþingi í dag. Eins og mbl.is greindi frá leiðir Karl Garðars­son lista ­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður og Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir í suður. 

Niðurstöður kosninganna eru nú ljósar og voru eftirfarandi kosnir: 

Reykjavík suður

  1. Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra
  2. Ingvar Mar Jónsson, flugstjóri og varaborgarfulltrúi
  3. Alex Björn B. Stefánsson, nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
  4. Björn Ívar Björnsson háskólanemi
  5. Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari

Reykjavík norður

  1. Karl Garðarsson alþingismaður
  2. Lárus Sigurður Lárusson hdl.
  3. Sævar Þór Jónsson hdl.
  4. Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
  5. Gunnar Kristinn Þórðarson stjórnsýslufræðingur
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert