Tillagan var ekki afgreidd

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins hélt yfirlitsræðu sína á flokksþingi …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins hélt yfirlitsræðu sína á flokksþingi í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Anna Kolbrún Árnadóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna segir að tillagan hafi verið lögð fram og hún rædd á fundi framkvæmdastjórnar flokksins í gær en tillagan laut að því að færa ætti yfirlitsræðu formanns flokksins aftast í dagskrá þingsins. Tillagan var hins vegar ekki afgreidd.

Anna Kolbrún á sæti í framkvæmdastjórninni en hún tók þátt í fundinum í gegnum síma þar sem hún var stödd fyrir norðan. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, sagði í ræðupúlti á flokksþinginu í dag að slík tillaga hafi verið borin upp en honum hafi ekki litist á hugmyndina. Segir Anna í samtali við mbl.is að til­lagan hafi ekki verið bor­in upp á réttan hátt á fund­in­um enda hefði henni þá átt að ber­ast slík til­laga.

Frétt mbl.is: „Menn hafa haldið fram ósannindum“

Þá segir Anna Kolbrún það andrúmsloft, sem Ásmundur Einar Daðason lýsti í ræðu sinni á þinginu, ekki vera sína upplifun af fundinum. Umræður hafi jú verið hreinskiptar en lætin hafi langt í frá verið jafn mikil og þau sem Ásmundur lýsti.

Loks lýsir Anna yfir vonbrigðum sínum yfir því að Ásmundur Einar hafi rofið trúnað um það sem fram fór á fundinum með þeim hætti sem hann gerði á þinginu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert