Eygló gefur ekki kost á sér

Eygló Harðardóttir.
Eygló Harðardóttir. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

 Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá henni en Eygló hefur setið á þingi í tæp níu ár.

„Í nóvember 2008 tók ég sæti á Alþingi fyrir hönd Framsóknarflokksins við erfiðar aðstæður í miðju bankahruni.  Árin síðan hafa verið einstaklega viðburðarrík og árangurinn af vinnu við efnahagslega endurreisn íslensks samfélags hefur verið mikill.

Þar hef ég verið stolt af baráttu okkar framsóknarmanna gegn skuldum, hvort sem það eru skuldir heimilanna eða sá skuldaklafi sem erlendir kröfuhafar vildu hengja á þjóðarbúið. Ég er jafnframt einkar stolt af að hafa sem félags- og húsnæðismálaráðherra komið á nýju húsnæðiskerfi, bætt hag lífeyrisþega og unnið gegn ofbeldi í íslensku samfélagi.

Ég hef lengi verið sannfærð um að þingmennska á ekki að vera ævistarf og talað fyrir stjórnarskrárbreytingum um að hver þingmaður sæti ekki lengur en átta ár samfellt á Alþingi.  Í nóvember 2017 verða þau ár orðin níu hjá mér. Því tel ég rétt á þessum tímapunkti að láta staðar numið og leita nýrra og skemmtilegra ævintýra á öðrum vettvangi.

Því mun ég ekki gefa kost á mér til þingstarfa fyrir alþingiskosningarnar hinn 28. október næstkomandi.

Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem hafa stutt mig í mínum störfum í gegnum árin, kjósendum fyrir það traust og trúnað sem þeir hafa veitt mér til að starfa í þeirra þágu, góðum félögum úti um allt land fyrir gott samstarf og síðast en ekki síst fjölskyldu minni.

Það er von mín að komandi kosningabarátta verði jákvæð og heiðarleg og að samvinnuhugsjón Framsóknarflokksins muni þar ná góðum hljómgrunni.“

Þingmennirnir sem sitja á Alþingi í dag.
Þingmennirnir sem sitja á Alþingi í dag. Kortadeild Morgunblaðsins
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert