Katrín og Svandís leiða lista VG

Katrín Jakobsdóttir gengur til fundar við Bjarna Benediktsson, eftir kosningarnar …
Katrín Jakobsdóttir gengur til fundar við Bjarna Benediktsson, eftir kosningarnar í fyrra. mbl.is/Eggert

Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík samþykkti í kvöld framboðslista hreyfingarinnar til Alþingis í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur í kosningunum 28. október næstkomandi. Katrín Jakobsdóttir leiðir lista hreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður og Svandís Svavarsdóttir í Reykjavíkurkjördæmi suður.

 Framboðslisti Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi norður

  1. Katrín Jakobsdóttir, alþingiskona.
  2. Steinunn Þóra Árnadóttir, alþingiskona.
  3. Andrés Ingi Jónsson, alþingismaður.
  4. Halla Gunnarsdóttir, blaðamaður og alþjóðastjórnmálafræðingur.
  5. Álfheiður Ingadóttir, ritstjóri.
  6. Gísli Garðarsson, fornfræðingur.
  7. Þorsteinn V Einarsson, deildarstjóri í frístundamiðstöð.
  8. Hildur Knútsdóttir, rithöfundur.
  9. Ragnar Kjartansson, listamaður.
  10. Jovana Pavlovic, stjórnmála- og mannfræðingur.
  11. Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, flugfreyja og leikkona.
  12. Ragnar Karl Jóhannsson, uppeldis- og menntunarfræðingur.
  13. Guðrún Ágústsdóttir, formaður öldungaráðs Reykjavíkurborgar.
  14. Níels Alvin Níelsson, sjómaður.
  15. Lára Björg Björnsdóttir, ráðgjafi.
  16. Torfi Túlíníus, prófessor.
  17. Brynhildur Björnsdóttir, leikstjóri.
  18. Valgeir Jónasson, rafeindavirki.
  19. Sigríður Thorlacius, söngkona.
  20. Erling Ólafsson, kennari.
  21. Birna Þórðardóttir, ferðaskipuleggjandi.
  22. Sjöfn Ingólfsdóttir, fyrrv. formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar.

Framboðslisti Vinstri grænna í Reykjavíkurkjördæmi norður

  1. Svandís Svavarsdóttir, alþingiskona.
  2. Kolbeinn Óttarsson Proppé, alþingismaður.
  3. Orri Páll Jóhannsson, landvörður.
  4. Eydís Blöndal, ljóðskáld og heimspekinemi.
  5. Ugla Stefanía Jónsdóttir, trans aðgerðasinni.
  6. René Biasone, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun.
  7. Drífa Snædal, framkvæmdastýra SGS.
  8. Steinar Harðarson, vinnuverndarráðgjafi.
  9. Elísabet Indra Ragnarsdóttir, tónlistarfræðingur.
  10. Sveinn Rúnar Hauksson, læknir.
  11. Edda Björnsdóttir, kennari.
  12. Karl Olgeirsson, tónlistarmaður.
  13. Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari.
  14. Atli Sigþórsson (Kött Grá Pjé), skáld.
  15. Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
  16. Óli Gneisti Sóleyjarson, bókasafns- og upplýsingafræðingur.
  17. Indriði Haukur Þorláksson, hagfræðingur.
  18. Þórhildur Elísabet Þórsdóttir, framhaldsskólanemi.
  19. Jón Axel Sellgren, mannfræðinemi.
  20. Halldóra Björt Ewen, kennari.
  21. Úlfar Þormóðsson, rithöfundur.
  22. Guðrún Hallgrímsdóttir, verkfræðingur.
Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert