Þórhildur Sunna í hlutverki formanns

Helgi Hrafn, Þórhildur Sunna og Smári hafa fengið umboð sem …
Helgi Hrafn, Þórhildur Sunna og Smári hafa fengið umboð sem málsvarar Pírata. Ljósmynd/Píratar

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson og Smári McCarthy hafa fengið umboð sem málsvarar Pírata og samningamenn í komandi kosningum. Þetta var ákveðið á félagsfundi Pírata í gær að því er fram kemur í tilkynningu frá flokknum.

Þórhildur Sunna verður aðalsamningsaðili Pírata og mun því gegna hlutverki ígildis formanns flokksins í komandi stjórnarmyndunarviðræðum.

Þórhildur Sunna er oddviti í Reykjavíkur kjördæmi Suður. Hún er lögfræðingur að mennt en hún lærði alþjóða- og Evrópulög í háskólanum í Groningen og sérhæfði sig með meistaragráðu í mannréttindum og alþjóðlegum refsirétti í háskólanum í Utrecht. Hún er þingmaður Pírata frá árinu 2016, er varaformaður þingflokks Pírata og hefur starfað í trúnaðarstöðum fyrir flokkinn síðan árið 2015.

Þórhildur Sunna starfaði sem blaðakona og sérfræðingur hjá félagasamtökum þingsetuna, en síðasta verkefninu lauk hún með gerð heimasíðunnar rettindagatt.is fyrir Landssamtökin Geðhjálp.

Þá segir að þessi skipun sé liður í lokaundirbúningi Pírata fyrir kosningar en fjárlög Pírata og helstu áherslumál verða kynnt eftir helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert