Aðeins 60% myndu kjósa VG aftur í dag

mbl.is/Kristinn Magnússon

Stuðningur við Vinstri græn hefur dalað um 3,6 prósentustig frá síðustu alþingiskosningum og mælist nú 13,0% miðað við 16,9% í kosningunum. Á sama tíma hefur stuðningur við Samfylkingu aukist úr 12,1% í 16,0% og er Samfylkingin nú annar stærsti flokkurinn.

Þetta eru niðurstöður nýrrar könnunar MMR á fylgi stjórnmálaflokka sem framkvæmd var dagana 14. til 17. nóvember. 15% þeirra sem kusu Vinstri græn síðast ætla að kjósa Samfylkinguna nú og 6% þeirra myndu kjósa Pírata.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hefur einnig dalað lítillega. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 25,2% í síðustu kosningum en mælist nú með 24,4%. Framsóknarflokkurinn fékk 10,7% í síðustu kosningum en mælist nú með 9,5% fylgi. Fylgi Viðreisnar, Miðflokksins og Pírata mælist mjög svipað og í síðustu kosningum en stuðningur við Flokk fólksins hefur aukist um 1,5%.

Einungis 60% af þeim sem kusu Vinstri græn síðast sögðust myndu kjósa flokkinn aftur ef kosið yrði til Alþingis í dag. Þá sögðust 66% þeirra sem kusu Framsóknarflokkinn myndu kjósa hann aftur ef kosið yrði í dag.

Af kjósendum einstaka flokka var hlutfall þeirra sem sögðust ætla kjósa sama flokkinn aftur núna hæst meðal kjósenda Samfylkingarinnar, en 91% þeirra sagðist styðja flokkinn áfram ef kosið til Alþingis í dag.

Í könnuninni var einnig spurt hvaða flokka kjósendur vildu síst hafa í ríkisstjórn. Af niðurstöðunum að dæma má sjá að stuðningur við stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri grænna er æði mismunandi í baklandi flokkanna. Sem dæmi má nefna að á sama tíma og 6% kjósenda Sjálfstæðisflokksins vilja síst starfa með Vinstri grænum sögðust 57% kjósenda Vinstri grænna síst vilja hafa Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn - sem gæti verið skýringin á því að 40% kjósenda Vinstri grænna sögðust ekki myndu kjósa þá aftur.

Könnunin náði til 994 einstaklinga, 18 ára og eldri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert