Málefnasamningur næst varla um helgina

Frá fundi formannanna í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær.
Frá fundi formannanna í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Ólíklegt er að Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Vinstri græn ljúki við málefnasamning sinn um helgina í stjórnarmyndunarviðræðum sínum. 

Samkvæmt heimildum mbl.is er verið að fara í gegnum nokkra málaflokka og reiknað er með því að einhverjir þeirra verði kláraðir um helgina.

Góður gangur er engu að síður sagður vera í viðræðunum.

Formenn flokkanna funduðu fyrr í dag í ráðherrabústaðnum en fundarhöld hafa einnig staðið yfir í Alþingishúsinu.

Haustfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins verður haldinn í kvöld og á morgun og munu  formennirnir þrír því ekki funda saman á meðan á honum stendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert