Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins munu kynna sína sýn á borgarmálin á opnum fundi undir yfirskriftinni „Til fundar við frambjóðendur“ í Valhöll í dag klukkan 17.
Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér að neðan.
Segir í tilkynningu að fyrirkomulag fundarins verði með þeim hætti að hver og einn frambjóðandi heldur stutta framsögu og kynnir sínar áherslur.
26 gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en kemur fram í tilkynningunni að vegna fjölda framboða verði ekki unnt að taka við fyrirspurnum á fundinum.
„Þess í stað verður sjálfstæðisfólki í Reykjavík gert kleift að senda inn skriflegar fyrirspurnir á netfangið reykjavik22@xd.is fyrir hádegi á föstudag, 11. mars. Eftir það tekur framkvæmdastjórn Varðar spurningarnar saman, samræmir og óskar eftir svörum frá öllum frambjóðendum. Er það gert í þeirri viðleitni að tryggja að allir frambjóðendur fái sömu fyrirspurnir en svör frambjóðenda verða í kjölfarið birt á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins,“ segir í tilkynningunni.
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, mun stýra fundinum.