Kristur og glundroði

ÞÆTTIR  | 21. janúar | 16:40 
Önnur myndin í röð stuttmynda sem Mbl Sjónvarp sýnir á sunnudögum í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands er Christmess eftir Frosta Jón Runólfsson. Hann útskrifaðist af handrita og leikstjórnardeild vorið 2011 en hann hefur áður látið að sér kveða bæði í heimi kvikmynda og tónlistar. Myndin gerist á miðnætti þann 21. desember árið 2012 á fjórum mismunandi stöðum í heiminum, Belgíu, Íslandi, Rússlandi og Ameríku. „Við fylgjumst með fólkinu í sínu daglega lífi þegar ragnarökin skella á og skynjun þeirra á umhverfi sínu er mjög mismunanadi,“ segir Frosti en þessi dagsetning er engin tilviljun en hann er að vísa til þess að Maya-indíánarnir ásamt fleirum hafa spáð heimsendi 22. desember 2012. Leikstjórn og handrit var í höndum Frosta sjálfs. Í aðalhlutverkum eru Walter Geir Grímsson, María Birta Bjarnadóttir, Vanessa Terrazas og Grímur Þórðarson. Um kvikmyndatöku sá Bjarni Grímsson og Anton Máni Svansson sá um framleiðslu. Þetta er hins vegar líka fjölskylduframleiðsla því kærasta Frosta, Hrafnhildur Hómgeirsdóttir sá um búninga og leikmynd. Myndin er ekki við hæfi barna