Vísindamenn hafa reiknað út hvaða dag mannkynið mun deyja út, en það mun gerast þann 31. október árið 2.252.006, eftir rétt rúmlega 2 milljónir og 250 þúsund ár. Þetta fullyrðir hópur evrópskra jarð- og steingergervingafræðinga eftir að hafa rannsakað mikinn fjölda steingervinga sem fundust í miðhluta Spánar. Niðurstöðurnar eru þær að meðalspendýr er til í um 2,5 milljónir ára, en nútímamaðurinn hefur verið til í um 250 þúsund ár nú þegar.
Ástæðan er talin sú að með vissu millibili fjarlægist jörðin sólina um ákveðinn tíma sem veldur mikilli kólnun á jörðinni. Ísöld sem fylgir slíkum hamförum mundi gera út af við mannkynið. Sky greinir frá þessu.