Segir farsíma hafa áhrif á heilann
Ný sænsk rannsókn bendir til þess, að notkun farsíma hafi áhrif á heilann en hins vegar er ekki ljóst hvort þau áhrif eru góð eða slæm. Til þessa hafa rannsóknir almennt ekki bent til þess að farsímanotkun hafi áhrif á starfsemi heilans.
Sænski vísindamaðurinn Fredrik Söderquist, sem starfar hjá háskólanum í Örebro, segist hafa fundið sannanir fyrir því, að notkun farsíma örvi framleiðslu á próteininu transthyretin í vökvanum, sem ver heilann fyrir hnjaski. Ekki sé hins vegar ljóst hvort þessar breytingar séu skaðlegar.
Danska blaðið Jyllands-Posten vitnar í tilkynningu frá Söderquist þar sem segir, að aukið magn transthyretin þurfi í sjálfu sér ekki að vera vandamál en þessi niðurstaða sýni, að farsímar hafi áhrif á heilastarfsemina með áður óþekktum hætti.
Söderquist hefur einnig rannsakað hverskonar óþægindi börn og unglingar telja sig verða fyrir í tengslum við notkun farsíma. Nefndu þau höfuðverk, astma og einbeitingarskort. Hins vegar þurfi meiri rannsóknir ef á að reyna að útiloka aðra þætti, sem þar geti spilað inn í.
Rannsóknarhópur Fredrik Söderquists gerði könnun hjá hópi fólks um símavenjur þess en spurt var um hve oft og lengi það talaði í farsíma. Í kjölfarið voru teknar blóðprufur af fólkinu og í ljós kom, að þeir sem töluðu mikið og lengi í farsíma voru með meira af transthyretin í heilavökvanum. Þá gerðu vísindamennirnir einnig rannsóknir á fólki, sem talaði samfellt í farsíma í hálftíma. Á þeim tíma jókst próteinið mælanlega.
Söderquist segir að þessar niðurstöður bendi til þess, að þeir sem nota farsíma mikið eigi að nota handfrjálsan búnað eins oft og þeir geta.-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up






















