Líkur á að finna líf á öðrum hnöttum aukast

Menn hafa lengi reynt að ímynda sér hvernig verur á öðrum hnöttum kunni að líta ... stækka

Menn hafa lengi reynt að ímynda sér hvernig verur á öðrum hnöttum kunni að líta út.

Líkur á að líf finnist á öðrum hnöttum hafa aldrei verið meiri en nú, að sögn Rees lávarðar, forseta breska konunglega stjörnufræðingafélagsins. Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir lávarðinum, að slík uppgötvun gæti haft gríðarlegar breytingar í för með sér fyrir mannkynið.

BBC segir, að alþjóðleg ráðstefna vísindamanna sé að hefjast í Lundúnum um möguleika á að finna líf á öðrum hnöttum. Vísindamenn hafa í hálfa öld reynt að nema útvarpssendingar frá öðrum hnöttum, árangurslaust til þessa. En Rees lávarður segir að líkur á að finna aðrar vitsmunaverur séu sífellt að aukast.

„Tækninni hefur fleygt svo mikið fram, að í fyrsta skipti getum við í raun og veru vonast til að finna plánetur á stærð við jörðina, sem eru á braut um aðrar stjörnur. Við getum komist að raun um hvort á þeim séu meginlönd og höf og hvernig andrúmsloftið er. 

Þótt það gæti orðið erfitt að komast að því hvort þar sé líf þá væri það gríðarmikið skref að fá einhverja mynd af annarri plánetu, líkri jörðinni," hefur BBC eftir lávarðinum.  

Hann segir, að nýjustu gerðir geimsjónauka geti fundið plánetur líkar jörðinni sem eru á braut um fjarlægar stjörnur.  „Ef við finnum líf, jafnvel í hinni frumstæðustu mynd, annarstaðar yrði það ein merkasta uppgötvun 21. aldarinnar. Ég tel, að það gæti verið líf og vitsmunalíf úti í geimnum í formum sem við höfum ekki enn gert okkur í hugarlund. Og það vitsmunalíf gæti verið því mannlega mun fremra, svipað og munurinn er á manni og simpansa."  

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Einn af stofnendum Apple, Steve Wozniak, með Powerbook þar sem eplið fræga er á hvolfi.

Eplið var á hvolfi fyrir notandann

Í gær, 15:44 Eitt sinn sneri hið þekkta kennimerki Apple öfugt á fartölvunum fyrirtækisins þegar þær voru opnar. Því var breytt eftir nokkur ár en nú hefur fyrrverandi starfsmaður hjá Apple, Joe Moreno, útskýrt á bloggsíðu sinni hvernig á þessu stóð. Meira »
Stofnandi WikiLeaks, Julian Assange

Hönnuður innsendingakerfis Wikileaks á landinu

Í gær, 13:20 Netkerfaráðstefna Terena fór vel af stað í Háskólabíói í gær. Einn fyrirlesara er Jake Appelbaum sem kom að hönnun kerfisins sem gerir fólki kleift að senda órekjanlegar upplýsingar til Wikileaks. Meira »

Faðir fjarstýringarinnar er látinn

Fjarstýring af gerðinni Flash-Matic.
Í gær, 23:27 Uppfinningamaðurinn Eugene Polley, sem fann upp fjarstýringuna er látinn, 96 ára að aldri. Uppfinning hans, Flash-Matic beindi ljósi að fótósellum sem staðsettar voru á sjónvarpstækjum og þannig var hægt að kveikja og slökkva á tækinu og skipta á milli stöðva. Meira »

Einkarekin geimflaug á loft

Falcon 9-eldflaugin frá SpaceX á skotpalli.
Í gær, 10:01 Bandaríska fyrirtækið SpaceX varð í dag fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta á loft eigin eldflaug til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Meira »

Plöntulykill í snjallsímann

Plöntulykillinn.
í fyrradag Plöntulykillinn, greiningarlykill fyrir íslensku flóruna, kemur á markað fyrir Android símtæki og spjaldtölvur í byrjun næsta mánaðar. Lykillinn gerir fólki kleift að greina á einfaldan hátt um það bil 470 plöntur en af þeim eru rúmlega 800 ljósmyndir og ítarlegar teikningar af sérkennum þeirra. Meira »

Hluti heilans minnkar við áföll

Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni.
Í gær, 10:41 Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Meira »

Hrotur auka líkur á krabbameini

í fyrradag Bandarískir vísindamenn hafa sýnt fram á að hrotur og aðrar svefntruflanir, sem hamla eðlilegu súrefnisflæði um líkama mannsins í hvíld, geta aukið líkur á krabbameini. Meira »

Krefja Google um skýringar

Google
í fyrradag Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið bandaríska tölvufyrirtækinu Google vikur til þess að veita upplýsingar í tengslum við rannsókn samkeppnisyfirvalda á markaðsráðandi stöðu Google varðandi leitarvélar á netinu. Meira »

„Gramsað“ eftir rafrænum bókum

Kindle-lesvélin frá Amazon.
í fyrradag Waterstones-bókabúðirnar á Bretlandseyjum munu brátt hefja sölu á Kindle-lesvélinni frá Amazon og gera bókaormum kleift að „gramsa“ eftir rafrænum bókum í búðum sínum. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. Meira »

Pakistanar komast á Twitter á ný

Pakistanar komust ekki inn á Twitter í dag
20.5. Pakistönsk stjórnvöld hafa opnað fyrir aðgang að samskiptavefnum Twitter á ný en vefnum var lokað fyrr í dag vegna samkeppni sem þar fór fram þar sem fólk gat sett inn skopmyndir af Múhameð spámanni. Meira »

Magnaður hringmyrkvi myndskeið

Magnaður hringmyrkvi
í fyrradag Milljónir manna fylgdust með hringmyrkva um helgina og sögðu áhorfendur atburðinn hafa verið afar magnaðan.  Meira »

Lokað á Twitter vegna guðlasts

Tíst á Twitter.
20.5. Pakistönsk stjórnvöld lokuðu í dag á samskiptasíðuna Twitter, vegna keppni sem efnt hefur verið til þar um að birta skopmyndir af spámanninum Múhammeð. Meira »

Samdráttur í farsímasölu

Samsung snjallsími: Galaxy Note
16.5. Farsímasala dróst saman á fyrsta ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti sem salan á farsímum dregst saman frá því á fyrir hluta ársins 2009. Samsung seldi flesta farsíma á fyrstu þremur mánuðum ársins. Meira »

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa
16.5. Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Meira »

Nýr íslenskur tölvuleikur á markað

Zorblobs, leikurinn sem Fancy Pants Global vinnur nú að því að klára.
15.5. Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Fancy Pants Global vinnur nú að þróun á nýjum tölvuleik sem það hyggst markaðssetja á síðari hluta þessa árs. Meira »

Árás gerð á Pirate Bay

Merki Pirate Bay.
16.5. Tölvuárás hefur lamað starfsemi skráarskiptasíðunnar Pirate Bay (TPB) undanfarinn sólarhring og hefur verið nánast ómögulegt að komast inn á vef þeirra. Meira »

Fágætur sólmyrkvi um helgina

Hringmyrkvi verður um helgina.
16.5. Morgunhanar í Kína og Japan geta orði vitni af fágætum sólmyrkva um helgina. Um verður að ræða svokallaðan hringmyrkva sem verður þegar tunglið skyggir fyrir sólkringluna miðja en ekki jaðar hennar, séð frá athugunarstað. Meira »

Samfélagsmiðlar að taka við hlutverki tölvupóstsins

150 milljón tíst fara um Twitter á hverjum degi.
15.5. Ríflega 60 milljón stöðuuppfærslur eru á Facebook og 150 milljón tíst á Twitter dag hvern. Á sama tíma eru 295 milljarðar tölvupósta sendir á degi hverjum, þar af er stór hluti af þeim sendingum ruslpóstur, segir Snæbjörn Ingi Ingólfsson lausnaráðgjafi Nýherja í erindi sínu um Social Business hugmyndafræði sem nú hefur rutt sér til rúms í mörgum fyrirtækjum, á ráðstefnu Nýherja sem haldin er á Egilsstöðum í dag. Meira »
Finnur.is
BÍLAMERKINGAR
Bílamerkingar Fyrir allar stærðir og gerðir bíla. Sendið fyrirspurn á audmerkt@a...
Skoda Oktavia til sölu
Skoda Oktavia station bíll, árgerð 2005 til sölu. Bíllinn er keyrður um 130.000 ...
Til sölu Honda Shadow 125cc árg 2007.
Til sölu Honda Shadow 125 cc árg 2007 , ekið aðeins 900 km, lítur út eins og ...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
 
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...