Aukakílóin lengja lífið
Aukakílóin geta haft góð áhrif þegar aldurinn færist yfir. mbl.is/ÞÖK
Ný áströlsk rannsókn bendir til þess, að aldrað fólk, sem er með hóflega mörg aukakíló lifi lengur en þeir sem eru í svokallaðir kjörþyngd. Þeir sem þjást af offitu eða eru of léttir lifa hins vegar skemur en aðrir.
Grein um rannsóknina birtist í blaðinu Journal of the American Geriatric Society og þar kemur fram, að það sé ekki hollt fyrir fólk sem komið er yfir sjötugt, að fara í megrun. Fram kemur einnig, að kyrrsetur stytti lífið.
Í rannsókninni, sem gerð var á vegum háskóla í Ástralíu, var markmiðið að rannsaka samband þyngdar og langlífis. ´
Í ljós kom, að þeir sem voru skilgreindir sem heldur of þungir lifðu að jafnaði lengur en aðrir og hættan á að þeir fengju tiltekna sjúkdóma, svo sem hjartasjúkdóma, krabbamein og króníska öndunarfærasjúkdóma voru einnig minnstar.
Á vef BBC er haft eftir Leon Flicker, sem stýrði rannsókninni, að hún bendi til þess, að líkamsfita hafi önnur áhrif á þá, sem náð hafi áttræðisaldri en yngra fólk.
Bloggað um fréttina
-
Hörður Halldórsson Allt er best í hófi -
Guðrún Þóra Hjaltadóttir Lítið nýtt í þessu. -
Sædís Ósk Harðardóttir Þess vegna held ég í mín...
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up






















