Fiskiolía verndar geðheilsuna

Þeir sem eru líklegir til að fá geðsjúkdóma geta dregið úr hættunni á því með því að taka inn fiskiolíu daglega, samkvæmt nýrri rannsókn.

Rannsóknin benti til þess að dagleg inntaka fiskiolíu væri jafnáhrifarík og geðlyf og drægi úr líkunum á geðsjúdómum á borð við geðklofa um fjórðung. Rannsóknarmennirnir telja að þetta stafi af því að omega-3 fitusýrur í olíunni breyti boðum til heilans með þessum jákvæðu áhrifum.

Hópur vísindamanna frá Austurríki, Ástralíu og Sviss annaðist rannsóknina sem náði til um 80 manna sem taldir voru líklegir til að fá alvarlega geðsjúkdóma. Helmingur þeirra tók inn fiskiolíu í hylkjum daglega í 12 vikur en hinn helmingurinn gervilyf. Ári síðar höfðu tveir í olíuhópnum fengið geðsjúkdóm en ellefu á meðal þeirra sem fengu gervilyfið. Vísindamennirnir komust því að þeirri niðurstöðu að á einu ári gæti einn af hverjum fjórum fyrirbyggt geðsjúkdóma með því að taka inn fiskiolíu daglega.

Skýrt er frá rannsókninni í Archives of General Psyciatry. Reutersfréttastofan hefur eftir  G. Paul Amminger hjá Melbourneháskóla í Ástralíu, að  að omega-3 fitusýra, sem eru í fiskiolíu og einnig í lýsi, geti með ýmsum hætti stuðlað að því að vernda heilann. Þessi fitusýra sé hluti af heilafrumum og stjórni virkni tveggja efna sem tengjast boðskiptum, dopamine og serotonin. Þá eykur neysla fiskiolíu einnig magn andoxunarefnisins glutathione.

Amminger segir, að ef frekari rannsóknir styrki þessar niðurstöður, virðist neysla fiskiolíu geta verið örugg leið til að styrkja heilann og hamla á móti geðklofa eða algengari geðröskunum, svo sem sjúklegu þunglyndi og  geðhvarfasýki.

Vísindamennirnir eru nú að undirbúa frekari og umfangsmeiri tilraunir á áhrifum omega 3.

Frétt Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Tækni og vísindi »

Einn af stofnendum Apple, Steve Wozniak, með Powerbook þar sem eplið fræga er á hvolfi.

Eplið var á hvolfi fyrir notandann

Í gær, 15:44 Eitt sinn sneri hið þekkta kennimerki Apple öfugt á fartölvunum fyrirtækisins þegar þær voru opnar. Því var breytt eftir nokkur ár en nú hefur fyrrverandi starfsmaður hjá Apple, Joe Moreno, útskýrt á bloggsíðu sinni hvernig á þessu stóð. Meira »
Stofnandi WikiLeaks, Julian Assange

Hönnuður innsendingakerfis Wikileaks á landinu

Í gær, 13:20 Netkerfaráðstefna Terena fór vel af stað í Háskólabíói í gær. Einn fyrirlesara er Jake Appelbaum sem kom að hönnun kerfisins sem gerir fólki kleift að senda órekjanlegar upplýsingar til Wikileaks. Meira »

Faðir fjarstýringarinnar er látinn

Fjarstýring af gerðinni Flash-Matic.
Í gær, 23:27 Uppfinningamaðurinn Eugene Polley, sem fann upp fjarstýringuna er látinn, 96 ára að aldri. Uppfinning hans, Flash-Matic beindi ljósi að fótósellum sem staðsettar voru á sjónvarpstækjum og þannig var hægt að kveikja og slökkva á tækinu og skipta á milli stöðva. Meira »

Einkarekin geimflaug á loft

Falcon 9-eldflaugin frá SpaceX á skotpalli.
Í gær, 10:01 Bandaríska fyrirtækið SpaceX varð í dag fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta á loft eigin eldflaug til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Meira »

Plöntulykill í snjallsímann

Plöntulykillinn.
í fyrradag Plöntulykillinn, greiningarlykill fyrir íslensku flóruna, kemur á markað fyrir Android símtæki og spjaldtölvur í byrjun næsta mánaðar. Lykillinn gerir fólki kleift að greina á einfaldan hátt um það bil 470 plöntur en af þeim eru rúmlega 800 ljósmyndir og ítarlegar teikningar af sérkennum þeirra. Meira »

Hluti heilans minnkar við áföll

Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni.
Í gær, 10:41 Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Meira »

Hrotur auka líkur á krabbameini

í fyrradag Bandarískir vísindamenn hafa sýnt fram á að hrotur og aðrar svefntruflanir, sem hamla eðlilegu súrefnisflæði um líkama mannsins í hvíld, geta aukið líkur á krabbameini. Meira »

Krefja Google um skýringar

Google
í fyrradag Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið bandaríska tölvufyrirtækinu Google vikur til þess að veita upplýsingar í tengslum við rannsókn samkeppnisyfirvalda á markaðsráðandi stöðu Google varðandi leitarvélar á netinu. Meira »

„Gramsað“ eftir rafrænum bókum

Kindle-lesvélin frá Amazon.
í fyrradag Waterstones-bókabúðirnar á Bretlandseyjum munu brátt hefja sölu á Kindle-lesvélinni frá Amazon og gera bókaormum kleift að „gramsa“ eftir rafrænum bókum í búðum sínum. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. Meira »

Pakistanar komast á Twitter á ný

Pakistanar komust ekki inn á Twitter í dag
20.5. Pakistönsk stjórnvöld hafa opnað fyrir aðgang að samskiptavefnum Twitter á ný en vefnum var lokað fyrr í dag vegna samkeppni sem þar fór fram þar sem fólk gat sett inn skopmyndir af Múhameð spámanni. Meira »

Magnaður hringmyrkvi myndskeið

Magnaður hringmyrkvi
í fyrradag Milljónir manna fylgdust með hringmyrkva um helgina og sögðu áhorfendur atburðinn hafa verið afar magnaðan.  Meira »

Lokað á Twitter vegna guðlasts

Tíst á Twitter.
20.5. Pakistönsk stjórnvöld lokuðu í dag á samskiptasíðuna Twitter, vegna keppni sem efnt hefur verið til þar um að birta skopmyndir af spámanninum Múhammeð. Meira »

Samdráttur í farsímasölu

Samsung snjallsími: Galaxy Note
16.5. Farsímasala dróst saman á fyrsta ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti sem salan á farsímum dregst saman frá því á fyrir hluta ársins 2009. Samsung seldi flesta farsíma á fyrstu þremur mánuðum ársins. Meira »

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa
16.5. Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Meira »

Nýr íslenskur tölvuleikur á markað

Zorblobs, leikurinn sem Fancy Pants Global vinnur nú að því að klára.
15.5. Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Fancy Pants Global vinnur nú að þróun á nýjum tölvuleik sem það hyggst markaðssetja á síðari hluta þessa árs. Meira »

Árás gerð á Pirate Bay

Merki Pirate Bay.
16.5. Tölvuárás hefur lamað starfsemi skráarskiptasíðunnar Pirate Bay (TPB) undanfarinn sólarhring og hefur verið nánast ómögulegt að komast inn á vef þeirra. Meira »

Fágætur sólmyrkvi um helgina

Hringmyrkvi verður um helgina.
16.5. Morgunhanar í Kína og Japan geta orði vitni af fágætum sólmyrkva um helgina. Um verður að ræða svokallaðan hringmyrkva sem verður þegar tunglið skyggir fyrir sólkringluna miðja en ekki jaðar hennar, séð frá athugunarstað. Meira »

Samfélagsmiðlar að taka við hlutverki tölvupóstsins

150 milljón tíst fara um Twitter á hverjum degi.
15.5. Ríflega 60 milljón stöðuuppfærslur eru á Facebook og 150 milljón tíst á Twitter dag hvern. Á sama tíma eru 295 milljarðar tölvupósta sendir á degi hverjum, þar af er stór hluti af þeim sendingum ruslpóstur, segir Snæbjörn Ingi Ingólfsson lausnaráðgjafi Nýherja í erindi sínu um Social Business hugmyndafræði sem nú hefur rutt sér til rúms í mörgum fyrirtækjum, á ráðstefnu Nýherja sem haldin er á Egilsstöðum í dag. Meira »
Finnur.is
9 MYNDIR
Teg. 99117 - Mjúkir og þægilegir dömusandalar úr le...
Góður sjálfskiptur station bíll á 150.000.-
Opel Station 1995, ný tímareim,nýjar bremsur, nýtt batterí, dekk og margt fleira...
Verkfræðingur
Óska eftir 2-3ja herbergja íbúð á leigu á sanngjörnu verði. Skilvísum greiðslum ...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
 
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....