Lifrarskaði tengdur við Herbalifeneyslu
Nýleg íslensk könnun á aukaverkunum náttúruefna sýndi að lifrarskaði af völdum svonefndar eitrunarlifrarbólgu var oftast tengdur notkun Herbalife. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.
Í grein sem Magnús Jóhannsson, læknir og prófessor í lyfjafræði, og meltingarlæknarnir Sif Ormarsdóttir og Sigurður Ólafsson skrifa í Læknablaðið, er lýst fimm sjúklingum með eitrunarlifrarbólgu sem grunur lék á að mætti rekja til neyslu Herbalife.
Ályktun um orsakatengsl við Herbalife byggðist á því að sjúkdómseinkenni komu fram þegar Herbalife hafði verið neytt í nokkurn tíma, einkenni hurfu þegar neyslu Herbalife var hætt og ekki var til staðar önnur sennilegri skýring. Þetta styrkist enn frekar af einu tilfelli þar sem endurtekin neysla Herbalife síðar leiddi til sömu eða svipaðra einkenna.
Fram kemur í greininni, að sjúklingarnir fimm náðu allir heilsu eftir að töku Herbalife var hætt. Hins vegar sé vitað um erlenda sjúklinga, sem hafi farið í lifrarígræðslu og einn dó eftir slíka aðgerð.
Læknarnir segja, að telja megi nokkuð víst að langflestar náttúruvörur sem hér séu á markaði séu meinlausar og sumar þeirra gætu gert eitthvert gagn, þó að yfirleitt hafi ekki verið sýnt fram á slíkt með vísindalegum aðferðum. Þetta gildi eflaust líka um vörur frá Herbalife sem flestar séu í raun venjuleg matvara. Frá þessu séu þó margar undantekningar þar sem um sé að ræða vörur með ýmiss konar jurtum sem mismikið sé vitað um.
„Það hlýtur að teljast alvarlegt mál ef vörur sem eiga að bæta
heilsufar hafa alvarlegar aukaverkanir, jafnvel þó það sé í litlum
mæli. Nokkrar umræður hafa orðið um algengi aukaverkana frá lifur við
neyslu Herbalife og hafa fulltrúar fyrirtækisins reynt að gera lítið úr
hættunni. Hins vegar hefur verið á það bent að skráningu
aukaverkana náttúruefna er víðast hvar mjög ábótavant og kannski höfum
við bara séð topp ísjakans. Ekki liggja fyrir upplýsingar um það magn
náttúru- og fæðubótarefna sem neytt er hér á landi og ef til vill
þyrfti að efla eftirlit með þessum vöruflokki," segir í greininni.























