Nýtt lúsameðal

Ný rannsókn bendir til þess að lyf sem notað er gegn maurakláða geti einnig virkað gegn lús sem orðin er ónæm fyrir þeim lyfjum sem hingað til hafa verið notuð.

Talið er að a.m.k. 100 milljón manns á heimsvísu glími við lús á hverju einasta ári. Sérstaklega eru það börn á leik- og grunnskólaaldri sem fá þennan óboðna gest. Þetta kemur fram í grein í læknatímaritinu New England Journal of Medicine.

Fram til þessa hefur helsta ráðið við lús verið að þvo hárið upp úr útþynntu skordýraeitri í sápuformi sem nefnist annars vegar permethrin og hins vegar malathion. Síðan á tíunda áratug síðustu aldar eru lýs í auknu mæli orðnar ónæmar fyrir þessum efnum.

Það hefur gert það að verkum að foreldrar hafa í mörgum tilfellum ekki átt val um annað en að fínkemba hár barna sinna og leita þannig að lúsum.
 
Lyfið ivermectin sem hingað til hefur verið notað gegn maurakláða er, að sögn franskra vísindamanna, ný árangursrík leið til þess að losna við lús.

Lyfið hefur verið prófað í rannsókn sem náði til 812 fullorðinna og barna á 376 heimilum á Bretlandi, Frakklandi, Írlandi og Ísrael.

Helmingur þátttakenda var meðhöndlaður með malathion og hinn helmingurinn með ivermectin, en lyfin voru gefin tvisvar með sjö daga millibili.

Að tveimur vikum liðnum kom í ljós að 95,2% þeirra sem fengu ivermectin voru laus við lúsina en aðeins 85% þeirra sem fengu malathion.

„Ivermectin er árangursríkari leið en þær sápur sem notaðar hafa verið. Hins vegar ætti aðeins að nota lyfið í erfiðum tilfellum,“ segir Olivier Chosidow, sem hafði umsjón með rannsókninni en hann starfar fyrir Heilbrigðisstofnun Frakklands og Lyfjarannsóknir.

Bætti hann við að ofnotkun á ivermectin gæti valdið ónæmi hjá lúsinni líkt og gerst hefði með önnur lyf.




  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Tækni og vísindi »

Einn af stofnendum Apple, Steve Wozniak, með Powerbook þar sem eplið fræga er á hvolfi.

Eplið var á hvolfi fyrir notandann

Í gær, 15:44 Eitt sinn sneri hið þekkta kennimerki Apple öfugt á fartölvunum fyrirtækisins þegar þær voru opnar. Því var breytt eftir nokkur ár en nú hefur fyrrverandi starfsmaður hjá Apple, Joe Moreno, útskýrt á bloggsíðu sinni hvernig á þessu stóð. Meira »
Stofnandi WikiLeaks, Julian Assange

Hönnuður innsendingakerfis Wikileaks á landinu

Í gær, 13:20 Netkerfaráðstefna Terena fór vel af stað í Háskólabíói í gær. Einn fyrirlesara er Jake Appelbaum sem kom að hönnun kerfisins sem gerir fólki kleift að senda órekjanlegar upplýsingar til Wikileaks. Meira »

Faðir fjarstýringarinnar er látinn

Fjarstýring af gerðinni Flash-Matic.
Í gær, 23:27 Uppfinningamaðurinn Eugene Polley, sem fann upp fjarstýringuna er látinn, 96 ára að aldri. Uppfinning hans, Flash-Matic beindi ljósi að fótósellum sem staðsettar voru á sjónvarpstækjum og þannig var hægt að kveikja og slökkva á tækinu og skipta á milli stöðva. Meira »

Einkarekin geimflaug á loft

Falcon 9-eldflaugin frá SpaceX á skotpalli.
Í gær, 10:01 Bandaríska fyrirtækið SpaceX varð í dag fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta á loft eigin eldflaug til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Meira »

Plöntulykill í snjallsímann

Plöntulykillinn.
í fyrradag Plöntulykillinn, greiningarlykill fyrir íslensku flóruna, kemur á markað fyrir Android símtæki og spjaldtölvur í byrjun næsta mánaðar. Lykillinn gerir fólki kleift að greina á einfaldan hátt um það bil 470 plöntur en af þeim eru rúmlega 800 ljósmyndir og ítarlegar teikningar af sérkennum þeirra. Meira »

Hluti heilans minnkar við áföll

Skjálftinn og flóðbylgjan ollu gríðarlegri eyðileggingu og manntjóni.
Í gær, 10:41 Tilfinningaleg streita af völdum flóðbylgjunnar í Japan í fyrra olli því að hluti heila eftirlifendanna skrapp saman. Þetta segja japanskir vísindamenn sem hafa rannsakað taugafræðileg áhrif sálrænna áfalla. Meira »

Hrotur auka líkur á krabbameini

í fyrradag Bandarískir vísindamenn hafa sýnt fram á að hrotur og aðrar svefntruflanir, sem hamla eðlilegu súrefnisflæði um líkama mannsins í hvíld, geta aukið líkur á krabbameini. Meira »

Krefja Google um skýringar

Google
í fyrradag Samkeppnisyfirvöld Evrópusambandsins hafa gefið bandaríska tölvufyrirtækinu Google vikur til þess að veita upplýsingar í tengslum við rannsókn samkeppnisyfirvalda á markaðsráðandi stöðu Google varðandi leitarvélar á netinu. Meira »

„Gramsað“ eftir rafrænum bókum

Kindle-lesvélin frá Amazon.
í fyrradag Waterstones-bókabúðirnar á Bretlandseyjum munu brátt hefja sölu á Kindle-lesvélinni frá Amazon og gera bókaormum kleift að „gramsa“ eftir rafrænum bókum í búðum sínum. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins. Meira »

Pakistanar komast á Twitter á ný

Pakistanar komust ekki inn á Twitter í dag
20.5. Pakistönsk stjórnvöld hafa opnað fyrir aðgang að samskiptavefnum Twitter á ný en vefnum var lokað fyrr í dag vegna samkeppni sem þar fór fram þar sem fólk gat sett inn skopmyndir af Múhameð spámanni. Meira »

Magnaður hringmyrkvi myndskeið

Magnaður hringmyrkvi
í fyrradag Milljónir manna fylgdust með hringmyrkva um helgina og sögðu áhorfendur atburðinn hafa verið afar magnaðan.  Meira »

Lokað á Twitter vegna guðlasts

Tíst á Twitter.
20.5. Pakistönsk stjórnvöld lokuðu í dag á samskiptasíðuna Twitter, vegna keppni sem efnt hefur verið til þar um að birta skopmyndir af spámanninum Múhammeð. Meira »

Samdráttur í farsímasölu

Samsung snjallsími: Galaxy Note
16.5. Farsímasala dróst saman á fyrsta ársfjórðungi og er þetta í fyrsta skipti sem salan á farsímum dregst saman frá því á fyrir hluta ársins 2009. Samsung seldi flesta farsíma á fyrstu þremur mánuðum ársins. Meira »

Ásókn í Diablo 3 olli hruni

Í Diablo stjórnar leikmaðurinn ólíkum hetjum í stríðinu við hið illa
16.5. Þriðja útgáfa af Diablo tölvuleiknum var gefin út í vikunni sem tölvuleikjarisinn Blizzard framleiðir. Ríflega áratugur er síðan önnur útgáfa leiksins kom út, seldist í tæplega 20 milljónum eintaka og vann til fjölda verðlauna. Meira »

Nýr íslenskur tölvuleikur á markað

Zorblobs, leikurinn sem Fancy Pants Global vinnur nú að því að klára.
15.5. Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn Fancy Pants Global vinnur nú að þróun á nýjum tölvuleik sem það hyggst markaðssetja á síðari hluta þessa árs. Meira »

Árás gerð á Pirate Bay

Merki Pirate Bay.
16.5. Tölvuárás hefur lamað starfsemi skráarskiptasíðunnar Pirate Bay (TPB) undanfarinn sólarhring og hefur verið nánast ómögulegt að komast inn á vef þeirra. Meira »

Fágætur sólmyrkvi um helgina

Hringmyrkvi verður um helgina.
16.5. Morgunhanar í Kína og Japan geta orði vitni af fágætum sólmyrkva um helgina. Um verður að ræða svokallaðan hringmyrkva sem verður þegar tunglið skyggir fyrir sólkringluna miðja en ekki jaðar hennar, séð frá athugunarstað. Meira »

Samfélagsmiðlar að taka við hlutverki tölvupóstsins

150 milljón tíst fara um Twitter á hverjum degi.
15.5. Ríflega 60 milljón stöðuuppfærslur eru á Facebook og 150 milljón tíst á Twitter dag hvern. Á sama tíma eru 295 milljarðar tölvupósta sendir á degi hverjum, þar af er stór hluti af þeim sendingum ruslpóstur, segir Snæbjörn Ingi Ingólfsson lausnaráðgjafi Nýherja í erindi sínu um Social Business hugmyndafræði sem nú hefur rutt sér til rúms í mörgum fyrirtækjum, á ráðstefnu Nýherja sem haldin er á Egilsstöðum í dag. Meira »
Finnur.is
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
Tilboð á Oolong- og Pu-erh tei
Er líka á Facebook: Tesíða Jónínu Ragnars http://www.facebook.com/profile.php...
BÍLAR ÓSKAST Á SKRÁ
Bílalíf bílasala ... í bílum erum við sterkir! Skráðu bílinn þinn frítt hjá bila...
 
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...
Sýslumaðurinn á akureyri - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Farþegaskipið moby dick til sölu

Moby Dick til sölu Farþegaskipið Moby...