Geimverur geta verið varhugaverðar
Stephen Hawking. Reuters
Breski stjarneðlisfræðingurinn Stephen Hawking segir nær öruggt, að geimverur séu til en best sé að forðast þær og íbúar á öðrum hnöttum kunni að vilja gera innrás á jörðina til að ræna auðlindum hennar.
„Ef geimverur heimsæktu okkur kynni niðurstaðan að verða svipuð og þegar Kólumbus lenti í Ameríku. Það var ekki mjög hægstætt fyrir frumbyggjana í Norður-Ameríku," sagði Hawking í nýjum sjónvarpsþætti á Discovery Channel.
Hawking segir, að jarðarbúar eigi ekki að reyna að vekja athygli íbúa á öðrum hnöttum á sér. Þvert á móti eigi þeir að reyna eins og þeir geta, að forðast samskipti við þá.
„Við þurfum ekki að líta lengra en í eigin barm til að sjá hvernig vitsmunalíf gæti þróast í eitthvað sem við viljum ekki eiga samskipti við."
Könnunarför hafa verið send út í geim með myndum af mönnum um borð og kortum sem sýna hvar jörðin er í sólkerfinu. Þá hafa útvarpsbylgjur verið sendar út í geim í þeirri von að þær nái „eyrum" geimvera.
Hawking segir að hann telji allar líkur á að líf sé að finna á öðrum hnöttum í öðrum sólkerfum. Vandinn sé að gera sér grein fyrir því hvernig slíkt líf sé.
Fram kemur á vef BBC, að í sjónvarpsþættinum sé sagt frá ýmsum hugmyndum manna um geimverur, þar á meðal að þær séu tvífættar jurtaætur eða gul rándýr, lík eðlum.
En Hawking segir að líklegast sé að ef til sé líf annarstaðar sé það í formi finnist líf annarstaðar sé það í örveruformi.
Bloggað um fréttina
-
-
Axel Jóhann Axelsson Jarðarbúar varasamastir? -
Egill Arnar Rossen Bara áróður -
Jóhannes Ragnarsson Tvær geimverur á Sprengisandi í morgun -
Þórður Guðmundsson Við vitum bara svo lítið -
Sigurður Sveinsson Þetta er laukrétt. -
Haugurinn bloggar Hvað meinar Hawking? -
Reputo Áhugavert -
Stjörnufræðivefurinn (www.stjornufraedi.is) Hjartanlega ósammála
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...






















