Danir eignast geimfara
AP
Danir hafa líkast til eignast sinn fyrsta geimfara. Hinn 33 ára gamli Andreas Mogensen mun á næstunni undirbúa sig í geimferð með rússnesku Sojuz geimflauginni. Mogensen hefur verið á mála hjá Evrópsku geimferðastofnuninni, ESA.
Í viðtali við Berlingske Tidende segir Mogensen þetta líka helsta tækifærið fyrir geimfara að komast upp í himingeiminn með Rússum þar sem Bandaríkjamenn hafa skorið sínar ferðir niður við trog.
Rússar hafa í samstarfi við Bandaríkjamenn og Evrópubúa byggt upp og þróað alþjóðlegu geimstöðina en verða líklega þeir einu sem munu á næstu árum standa fyrir ferðum þangað. Bandaríkjamenn hafa sem kunnugt er ákveðið að hætta sinni áætlun með geimskutlurnar og gerð Atlantis í næstu viku er að öllum líkindum sú síðasta í bili.
Ferðir Sojuz-geimflaugarinnar eru því taldar verða eftirsóttar, en Rússar hafa jafnan tekið evrópska geimfara með í för. Þeir gerðu sem kunnugt er samning við NASA nýverið um að senda einnig upp bandaríska geimfara á árunum 2013 og 2014.
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up






















