Tækni & vísindi
| mbl
| 1.6.2010
| 16:57
Tíðni krabbameina eykst
Samkvæmt nýjustu spá Alþjóðheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) stefnir allt í að krabbamein verði dánarmein 13,3 milljón manna á ári árið 2030. Til samanburðar mun geta þess að árið 2008 létust 7,6 milljónir manna úr krabbameini.
Nýjar rannsóknir á tíðni krabbameina benda til þess að allt að 21,3 milljónir manna greinist með krabbamein árið 2030 og þar af láti 13,3 milljónir manna í minni pokann fyrir sjúkdómnum.
Freddie Bray, vísindamaður hjá Alþjóðlegu krabbameinsrannsóknarmiðstöðinni, stjórnaði fyrrgreindri rannsókn sem náði til 27 mismunandi tegunda krabbameina. Hann segir að árið 2008 hafi 56% þeirra 12,7 manna sem greindust með ný krabbameinstilfelli og 63% þeirra 7,6 manna sem létust úr krabbameini búið í þróunarríkjunum.
Tölur sýna að það ár var lungnakrabbamein algengast krabbameinið, en þar á eftir kom brjóstakrabbamein og ristilkrabbamein. Flest krabbameinstilfelli greindust í fjölmennustu ríkjum heims, þ.e. Kína, Indlandi og Bandaríkjunum. Dánartíðnin var hæst í Norður-Ameríku, vesturhluta Evrópu og Ástralíu.
Að sögn Bray skýrist há dánartíðni í fyrrgreindum löndum út frá neyslumynstri almennings í ríkari löndum heims eftir síðari heimsstyrjöld þar sem reykingar hafi t.d. verið mjög algengar. Á síðustu árum hafi reykingar aukist til muna í þróunarríkjunum og það skýri hækkandi tíðni lungnakrabbameins á heimsvísu.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
HÚSBÍLL
FORD 1986 38" ísskápur, vaskur og eldavél. verð 390.þús. uppl. 6595055...
Komdu fljúgandi og gistu í Tjaldbót-2012
Eða leigðu 2-4 sæta flugvélar og sumarhús í nágrenni Eyjafallajöluls og Heklu.
...
VANTAR HERBERGI GEGN UMÖNNUN.
VILDI GJARNAN SJÁ UM EINSTAKLING SEM ÞARF AÐSTOÐ HEIMA GEGN GÓÐU PLÁSSI TIL AÐ V...