ESB styrkir verkefni Matís

Merki Matís
Merki Matís

Matís mun stýra tveimur nýjum fjölþjóðaverkefnum sem Evrópusambandið hefur ákveðið að styrkja til þriggja ára, EcoFishMan og AMYLOMICS. Styrkir ESB hljóða upp á alls 5,5 milljónir evra, jafnvirði um 860 milljóna króna. Þar af er hlutur Matís 950.000 evrur til beggja verkefna, jafnvirði um 150 milljóna króna.

Matís stjórnar báðum verkefnum, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu.

Í því felst að ESB lætur allt styrktarféð renna til Matís sem síðan greiðir innlendum og erlendum samstarfsaðilum sínum. Talsverður hluti verkefnanna verður unninn á starfsstöðvum Matís á landsbyggðinni, enda byggjast þau meðal annars á samstarfi Matís við fyrirtæki um allt land. Meistara- og doktorsnemendur munu starfa að verkefnunum.

„Evrópusambandið væntir þess að í EcoFishMan verkefninu verði þróuð ný aðferðafræði sem nýtist við breytingar og umbætur á fiskveiðistjórnunarkerfi sambandsins. Lögð er áhersla á samstarf við sjómenn, útgerð og vinnslu og að hagnýta upplýsingar úr rafrænum afladagbókum. Markmið verkefnisins er að stuðla að vistvænni, sjálfbærri og hagrænni stjórnun með sérstakri áherslu á rekjanleika og að lágmarka brottkast afla.

Að EcoFishMan verkefninu koma alls 13 stofnanir, fyrirtæki og háskólar í átta Evrópulöndum, þar á meðal Háskóli Íslands og háskólinn í Tromsö í Noregi. Gert er ráð fyrir að verkefnið kosti 3,7 milljónir evra á þremur árum og nemur styrkur ESB 3,0 milljónum evra.

Dr. Anna Kristín Daníelsdóttir, sviðsstjóri hjá Matís, verður verkefnisstjóri og dr. Sveinn Margeirsson, sviðsstjóri hjá Matís, verður með henni í vísindanefnd verkefnisins," segir í tilkynningu.

AMYLOMICS verkefnið mun hagnýta fjölbreytt lífríki jarðhitasvæða á Íslandi við að þróa hitaþolin ensím til notkunar í sterkju- og sykruiðnaði. Hita- og sýruþol eru nauðsynlegir eiginleikar í slíkum iðnaðarferlum en þá má finna í ensímum lífvera á hverasvæðum.

Meðal þátttakenda í AMYLOMICS er franska fyrirtækið Roquette Frères, sem er eitt hið stærsta í Evrópu í framleiðslu sterkju og afleiddra afurða, með ársveltu upp á um 7 milljarða evra. Roquette Frères fær ensím, sem þróuð verða í verkefninu, til prófunar og nýsköpunar í framleiðslu sinni.

Dr. Guðmundur Óli Hreggviðsson, fagstjóri hjá Matís, verður verkefnisstjóri. Tvö önnur íslensk fyrirtæki, taka beinan þátt í verkefninu, Roche Nimblegen og Prókazyme.

Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, segir í fréttatilkynningu að verkefnin tvö og stuðningur ESB við þau séu góð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag og viðurkenning fyrir Matís:

„Rannsóknarstyrkir ESB eru afar eftirsóttir og mikil samkeppni er um þá. EcoFishMan hlaut 14 stig af 15 mögulegum í mati fagnefndar ESB, sem er frábær árangur og skilaði verkefninu í hús hjá Matís og samstarfsaðilum. Með þessu festum við okkur enn frekar í sessi í alþjóðlegu vísindasamstarfi og svo er auðvitað sérstakur fengur að því fyrir Íslendinga að fá nú verulega fjármuni inn í samfélagið erlendis frá á þessum samdráttar- og niðurskurðartímum,“ er haft eftir Sjöfn í fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka