Tækni & vísindi
| AFP
| 9.8.2010
| 15:12
Þýskum ráðherrum ráðlagt að forðast iPhone og BlackBerry
Ríkisstjórn Þýskalands hefur sent þau skilaboð til ráðherra og embættismanna að nota ekki iPhone eða BlackBerry síma þar sem tölvuárásum hafi fjölgað gríðarlega.
Samkvæmt innanríkisráðuneytinu eru menn beðnir um að nota heldur símaþjónustu sem Deutsche Telekom býður samkvæmt ráðleggingum frá tækniráðgjöfum ríkisins, BSI. BlackBerry símar sem framleiddir eru af kanadíska fyrirtækinu RIM eru sagðir bjóða notendum mikið öryggi þegar kemur að verndun persónuupplýsinga og tölvupósts, en þýska ríkisstjórnin mun eftir sem áður vera á tánum yfir því að öll gögn fari í gegnum aðeins tvær símstöðvar RIM í Bretlandi og Kanada.
Thomas de Maiziere, innanríkisráðherra Þýskalands, segir raunverulega hættu á því að óæskilegur hugbúnaður rati alla leið inn á innri net ríkisstjórnarinnar í gegnum iPhone og BlackBerry síma. „Ríkisstjórnin verður að kappkosta að verja sitt eigið kerfi eftir bestu getu," segir de Maiziere. Þýskaland sé að upplifa bylgju í árásum erlendra leyniþjónusta og skipulagðrar glæpastarfsemi á tölvukerfi og þá ekki síst opinberu kerfin.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
-
„Það má dúndra“
-
Komast leikandi upp úr riðlinum
-
Úlfar mun fylgjast með töktum þeirra bestu
-
Heilsuræktin í Elliðaárdalnum
-
Innsýn í reksturinn
-
Logi: Fyrir okkur er þetta flugeldasýning
-
Þorvaldur: Hitt liðið barðist meira
-
Beirut residents fear sectarian flare-up
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003
EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html
S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
Babaria, snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
Gisting Akureyri - gista.is
Notalegar orlofsíbúður miðsvæðis á Akureyri. Uppábúin rúm, handklæði og internet...