43% Íslendinga eiga snjallsíma
Af öllum sem tóku afstöðu sögðust 63% nota mest farsíma frá Nokia. Finnski farsímaframleiðandin er hins vegar með 28% lægri hlutdeild í snjallsímum en hefðbundnum farsímum. Reuters
Fjórir af hverjum tíu (43%) eiga snjallsíma samkvæmt niðurstöðum könnunar sem MMR gerði á íslenskum farsímamarkaði í nóvember sl.
Fram kemur að Nokia sé með 28% lægri hlutdeild í snjallsímum en hefðbundnum farsímum. Jafnframt að fjöldi svarenda sem vilji helst kaupa iPhone sé langt umfram markaðshlutdeild.
Þá segir að af öllum sem hafi tekið afstöðu segist 63% nota mest farsíma frá Nokia. Ef svarendahópnum sé skipt eftir því hvort símtæki svarenda séu snjallsímar eða ekki komi hins vegar í ljós verulegur munur á fjölda notenda með Nokia síma.
Segir að 71% þeirra sem noti hefðbundin símtæki sem noti mest símtæki frá Nokia. 51% þeirra sem sögðust vera með snjallsíma hafi verið með símtæki frá Nokia. Hlutdeild Nokia meðal snjallsímanotenda sé því 28% lægri en hún sé meðal notenda á hefðbundnum farsímum.
Sjö af hverjum 10 sem tóku afstöðu sögðu það koma til greina að kaupa snjallsíma frá Nokia ef slíkur sími væri keyptur í dag. Töluvert færri, eða 43%, nefndu Nokia hins vegar sem þann framleiðanda sem þeir myndu líklegast velja ef þeir keyptu snjallsíma í dag.
Þrátt fyrir að eingöngu 2% svarenda segðust vera með iPhone frá Apple þá sagðist um fjórðungur svarenda líklegast kaupa sér símtæki frá Apple ef þeir væru að kaupa snjallsíma í dag.
„Það virðist því sem eftirspurn eftir iPhone sé langt umfram markaðshlutdeild – sem skýrist ef til vill af verði, en iPhone símtæki kostar í dag frá 145.000 kr. út úr búð á Íslandi,“ segir í tilkynningu frá MMR.
Könnunin var framkvæmd dagana 3.-5. nóvember 2010, og bárust svör frá 813 einstaklingum.

























