Bilun í tæknibúnaði hjá Símanum

AP

Bilun í búnaði hjá Símanum hefur valdið álagi á netþjónustu fyrirtækisins með þeim afleiðingum að það hefur hægst verulega á umferðinni undanfarnar 40 mínútur. Það hefur verið erfitt að hlaða niður innlendum og erlendum vefsíðum.

Skv. upplýsingum frá Símanum er búið að greina vandann og á umferð að vera komin í lag eða við það að komast í samt lag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert