Lítil útivera tengd nærsýni
Stundirnar sem börn eyða utandyra gætu tengst aukinni áhættu á nærsýni, segja sérfræðingar. Fyrir hverja viðbótar klukkustund sem er eytt utandyra á viku hverri dregst áhættan á nærsýni saman um 2%. Sérfræðingar fundu þetta út eftir að hafa tekið saman átta eldri rannsóknir sem höfðu verið gerðar við Háskólann í Cambridge. Að vera úti í náttúrulegu ljósi og tíminn sem fer í að horfa á hluti í fjarlægð utandyra gætu verið lykillinn að þessu segja sérfræðingarnir. Rannsóknin náði yfir 10.000 einstaklinga, börn og fullorðna.
Nærsýn börn eyða að meðaltali 3,7 færri klukkustundum á viku utandyra en þau börn sem annaðhvort höfðu venjulega sjón eða voru fjarsýn. En sérfræðingarnir segja að ástæðan fyrir þessu sé ekki alveg ljós ennþá. Þeir gera ráð fyrir að finna út að börn sem eyða meiri tíma utandyra, eyði einnig minni tíma í lestur, lærdóm eða tölvuleiki. En engin slík tengsl fundust í tveimur af þeim átta rannsóknum sem var litið á í þessu sambandi. Sérfræðingarnir þurfa nú nákvæmari gögn til að reyna að skilja hvaða þættir tengjast þessu, mikilvægastir þeirra eru; aukin notkun á fjarsjóninni utandyra, minni notkun á nærsjóninni, að vera berskjaldaður fyrir náttúrulegu ljósi eða líkamleg virkni. En aukin útivera er líka tengd meiri hreyfingu sem getur verndað gegn sykursýki og offitu, D-vítamín skorti og beinþynningu sem dæmi.
Nærsýni er mun algengari í dag í Bretlandi og Bandaríkjunum en hún var fyrir 30 til 40 árum. Að meðaltali eru 1-2% af fimm til sjö ára börnum í Bretlandi nærsýn. Um fimm milljónir Breta eru nærsýnir og þar af um tvö hundruð þúsund þeirra mjög alvarlega nærsýnir. Kemur þetta fram í frétt á BBC.
























