Þunglyndi algengt eftir jarðskjálfta
Jarðskjálftar hafa meiri áhrif á heilsu manna en aðrar náttúruhamfarir eins og flóð eða fellibylir. Kemur þetta fram í bandarískri rannsókn sem segir frá á vefsíðu BBC.
Í jarðskjálfta deyja margir strax og aðrir slasast alvarlega og geta ekki fengið almennilega meðferð vegna skemmda af völdum skjálftans. Á síðasta áratug hafa jarðskjálftar valdið yfir 780.000 dauðsföllum, eða nærri því 60% af öllum sem látist hafa af völdum náttúruhamfara. Aðrar hamfarir, eins og flóð og fellibylir, valda fleiri dauðsföllum af völdum drukknunar en færri meiðslum. Það er talið að fyrir hverja manneskju sem deyr af völdum jarðskjálfta, slasist þrjár aðrar. Börn eru oftast í meiri hættu á að slasast eða deyja í jarðskjálftum en fullorðnir. Eftir skjálftann í Haíti 2010 voru 53% sjúklinga yngri en 20 ára og 25% voru undir fimm ára aldri.
Þunglyndi er einnig algengt eftir jarðskjálfta, getur komið við 72% íbúa. Eftir jarðskjálftann í Tyrklandi 1999 hugleiddu 17% íbúa sjálfsmorð.
Yfir milljón jarðskjálftar af ýmsum stærðargráðum eiga sér stað í heiminum ár hvert. Margar stærstu borgir heims eru á jarðskjálftasvæðum, eins og Los Angeles, Tókýó, New York, Delhi og Shanghai, og setur það milljónir manna í hættu.
-
Zoran: Vorum betra liðið
-
Þórður: Frammúr okkar vonum
-
Garðar: Ljúft að skora
-
Magnaður hringmyrkvi
-
Kristján: Frammistaðan verðskuldaði stig
-
Rúnar: Erfitt að spila við Valsmenn
-
Ólafur: Fengum færi til að setja mark
-
Ólafur Páll: FH skorar nú oftast























