Ný aðferð gæti gagnast gegn parkinson
Vísindamönnum hefur tekist að breyta stofnfrumum í heilafrumur og að græða þær í heila apa. Vekur þetta von um að hægt verði að meðhöndla parkinson-sjúklinga með þessari aðferð.
Bandarískir vísindamenn í New York halda því fram að þeim hafi tekist að fá stofnfrumur til að breytast í taugafrumur líkt og þær sem parkinson-sjúkdómurinn drepur. Sýna rannsóknir þeirra fram á að frumurnar starfa eðlilega í öpunum og snúa við hreyfihömlunum sem sjúkdómurinn veldur hjá þeim.
Parkinson-sjúkdómurinn virkar þannig að frumur sem mynda dópamín í hluta heilans drepast. Veldur þetta skjálfta, stífleika og hægum hreyfingum. Þá geta sjúklingar upplifað þreytu, verki, þunglyndi og hægðatregðu sem versnar eftir því sem sjúkdómurinn vinnur á. Breska dagblaðið The Guardian segir frá þessu.
„Áður þá skildum við ekki fullkomlega hvernig ætti að fá stofnfrumurnar til þess að verða að réttu tegundinni af frumum. Frumurnar sem við gerðum áður mynduðu eitthvað af dópamíni en voru í raun ekki réttu tegundirnar af frumum svo að þær höfðu takmörkuð áhrif í dýrunum. Núna vitum við hvernig á að gera þetta rétt og það gefur góð fyrirheit um að hægt sé að nota aðferðina í framtíðinni við meðhöndlun,“ segir doktor Lorenz Studer við Memorial Sloan-Kettering krabbameinsrannsóknarstofnunina í New York.
-
Zoran: Vorum betra liðið
-
Þórður: Frammúr okkar vonum
-
Garðar: Ljúft að skora
-
Magnaður hringmyrkvi
-
Kristján: Frammistaðan verðskuldaði stig
-
Rúnar: Erfitt að spila við Valsmenn
-
Ólafur: Fengum færi til að setja mark
-
Ólafur Páll: FH skorar nú oftast























