Tilraun með öskusjá vel heppnuð

Airbus A400M herflugvélin losar ösku úr Eyjafjallajökli út í andrúmsloftið …
Airbus A400M herflugvélin losar ösku úr Eyjafjallajökli út í andrúmsloftið yfir Biskayflóa. Ljósmynd/Airbus

Frönsk herflugvél spúði í tilraunaskyni frá sér einu tonni af afar fíngerðri ösku úr Eyjafjallajökli vegna tilrauna með sérstaka öskusjá; nýja tegund af ratsjá fyrir flugvélar sem gera eiga flugmönnum kleift að sneiða hjá gosöskuskýjum í háloftunum. Talsmenn flugvélaverksmiðjanna Airbus segja að tilraunin hafi heppnast vel.

Daprar minningar flugrekenda vegna flugbanns af völdum eldanna í Eyjafjallajökli rifjast nú upp við óróann í Bárðarbungu og nágrenni og athygli beinist aftur að öskusjánni sem meðal annars er brúkuð núna við mælingar í íslenskum óbyggðum.

Öskunni íslensku var sleppt út í andrúmsloftið vesturundan Frakklandsströndum, á austanverðum Biskayaflóa, til að líkja eftir aðstæðum sem urðu við eldgosið í Eyjafjallajökli vorið 2010. Vegna gosösku þaðan var loftrými í Evrópu lokað fyrir flugi í um vikutíma. Var flugbannið víðtækara en nokkru sinni frá lokum seinna heimsstríðsins og var tekjutap af þessu völdum talið í milljörðum dollara.

Öskunni var dælt út á hringlaga ferli í 9-11 þúsund feta hæð úr fjögurra hreyfla A400M-herflutningaflugvél. Flaug hún fimm krappa hringi og bjó til 180-240 metra þykkt og rúmlega þriggja kílómetra langt ský.

Að því búnu flaug lítil tveggja hreyfla flugvél, Diamond DA42 Twin Star, gegnum skýið til að mæla það og taka úr því sýni.

Víðs fjarri en með stefnu á öskuskýið flaug svo Airbus A340-300-tilraunaþota sem búin var öskusjánni Avoid. Greindi hún skýið og gaf flugmönnum það til kynna þegar hún átti enn rúma 60 kílómetra ófarna að því. Svo fíngerð var askan að hluta til að kornin sáust ekki með berum augum – en fóru þó ekki framhjá sjánni góðu.

Tilraunin, sem átti sér stað í fyrrahaust, þótti takast það vel að Airbus hefur ákveðið að bjóða flugfélögum þotur með Avoid-sjánni þegar hún verður endanlega fullþróuð og tilbúin til notkunar í flugi. Þá ætlar breska lággjaldafélagið EasyJet að búa nokkrar af þotum sínum öskusjánni og hefja prófanir á þeim í farþegaflugi síðar á þessu ári.

„Við vonum að þessi tækni muni stuðla að gerð búnaðar er birtir þrívíddarmyndir af öskuskýjum og þróun þeirra,“ segir Manfred Birnfeld, aðalstjórnandi flugtilraunar Airbus um Avoid-sjána.

Að mati EasyJet myndi það að staðaldri dekka evrópska loftrýmið meira og minna ef um 100 þotur víðs vegar úr því yrðu búnar Avoid-sjánni, þar af 20 frá enska flugfélaginu sjálfu. Sem stendur brúka ráðgjafarstofnanir aðallega gervihnattamælingar til að búa til líkön af öskuskýjum og dreifingu þeirra og spá um útbreiðslu þeirra. Þau vísindi þykja ónákvæm og geta fyrir vikið ekki séð hvar þotum væri óhætt að fljúga.

Sér ósýnilegar agnir

Avoid-sjáin er sem næst innrauð myndavél sem er þess megnug að greina örfínar öskuagnir í allt að 100 kílómetra fjarlægð, allt frá 1,5 km flughæð og upp í 15 km hæð (50.000 fet). Með hana til fulltingis eru flugmenn sagðir geta sneitt hjá hættum sem gosösku fylgir, en rifjað er upp í þessu sambandi að árið 1982 drapst á öllum fjórum hreyflum Boeing-747-farþegaþotu British Airways eftir að hún flaug inn í öskuský skammt frá Indónesíu af völdum goss í eldfjallinu Galunggung. Hafði hún misst um 25.000 fet af flughæð sinni er áhöfninni tókst loks að endurræsa hreyflana. Þá drapst einnig á hreyflum þotu skammt frá Anchorage í Alaska árið 1989 er hana bar inn í ösku frá eldfjallinu Mount Redoubt.

Öskusjáin er hugverk norsks fyrirtækis, Nicarnica Aviation, sem sérhæfir sig í smíði mælitækja sem nema agnir og gastegundir úr fjarlægð. Og vegna óróans í og við Vatnajökul hafa sjónir manna og fjölmiðla beinst að henni á ný – og hættunni af gosösku fyrir flugvélar.

Í júlí í sumar sendi Nicarnica Aviation Veðurstofu Íslands þrjár NicAIR II-öskusjár vegna svonefnds Futurevolc-verkefnis, sem 26 aðilar taka þátt í og miðast við að bæta eftirlit með íslenskum eldfjöllum. Fengu starfsmenn veðurstofunnar þjálfun í notkun tækjanna á Krýsuvíkursvæðinu. Verði gos er búnaðurinn sagður munu skila mikilvægum mæligögnum sem nota megi til að segja fyrir um dreifingu gosösku.

Skynjari Avoid-öskusjárinnar á búk Airbusþotunnar.
Skynjari Avoid-öskusjárinnar á búk Airbusþotunnar. Ljósmynd/Airbus
NicAIR II-öskusjár og önnur mælitól voru prófuð í Krýsuvík.
NicAIR II-öskusjár og önnur mælitól voru prófuð í Krýsuvík. Ljósmynd/Airbus
Tonn af þurrkaðri ösku úr Eyjafjallajökli í lest frönsku herflutningaflugvélarinnar.
Tonn af þurrkaðri ösku úr Eyjafjallajökli í lest frönsku herflutningaflugvélarinnar. Ljósmynd/Airbus
Þessi flugvél flaug inn í skýið til mælinga og sýnatöku.
Þessi flugvél flaug inn í skýið til mælinga og sýnatöku.
NicAIR II öskusjár við prófanir í Krýsuvík í júlí er …
NicAIR II öskusjár við prófanir í Krýsuvík í júlí er starfsmenn Veðurstofu Íslands voru þjálfaðir í notkun þeirra. Ljósmynd/Nicarnica Aviation
Andaktugir fygljast vísindamenn með mælitækjum og öskusjá Airbusþotunnar í flugtilrauninni.
Andaktugir fygljast vísindamenn með mælitækjum og öskusjá Airbusþotunnar í flugtilrauninni. Ljósmynd/Airbus
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert