Facebook í vandræðum

Villumeldingin sem kemur upp þegar reynt er að tengjast Facebook.
Villumeldingin sem kemur upp þegar reynt er að tengjast Facebook. Mynd/Facebook

Notendur víða um heim virðast þessa stundina eiga í vandræðum með að tengjast vefþjónum Facebook-samfélagsmiðilsins. Þegar reynt er að tengjast vefnum koma upp villuskilaboð. Ekki er enn ljóst hvað orsakar bilunina, en hún virðist vera víða.

Þegar blaðamaður athugaði hvort síðan væri niðri hjá notendum víðar en á Íslandi, t.d. með þeirri þjónustu sem boðið er upp á hjá Down for everyone or just me, kom í ljóst að þetta er víðtækt vandamál.

Þetta er í annað skiptið í þessari viku sem Facebook á í vandræðum, en 24. september lá síðan einnig niðri. 

Villuskilaboð á Down for everyone or just me, þjónustunni þegar …
Villuskilaboð á Down for everyone or just me, þjónustunni þegar athugað var með tengimöguleika við facebook.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert