Jón Gnarr birti rétt í þessu mynd af snakki sem hann er að gæða sér á í Texas, þar sem hann býr sem stendur ásamt fjölskyldu sinni. Jón kennir handritsgerð við háskóla í Texas og saknar íslenska kjötsins ef marka má færsluna. Þarna skrifar Jón Gnarr, fyrrum borgarstjóri Reykjavíkur, í anda færslu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrum forsætisráðherra Íslands.
Jón er ekki sá fyrsti til að vitna í kex og kjötrétt Sigmundar Davíðs en fjöldi fólks hefur undanfarið birt undarlegar útfæslur af þessu flippi Sigmundar. Taka skal fram að Matvælastofnun hefur varað við neyslu hrás kjöts í kjölfar mikillar umræðu um hrátt kjöt.
Kunningi Jóns kommentar á færsluna og spyr hvort íslenska kjötinu hafi sum sé ekkert orðið ágengt þrátt fyrir stífa markaðssetningu í Bandaríkjunum. Jón er fljótur til svars: „Ég er búinn að fara bæði í Trader Joe og Whole Foods. Þeir voru ekki einu sinni með íslenskan fisk, hvað þá einhverjar kjötflísar. Þeir voru ekki einu sinni með íslenskt grænmeti enda gengum við bara út.“