Danir sólgnir í Mexíkómat Íslendinga

Guðmundur segir ekki útilokað að þeir opni stað á Íslandi …
Guðmundur segir ekki útilokað að þeir opni stað á Íslandi áður en langt um líður. mbli.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Chido Mexican Grill heitir „íslenskur“ staður í Danmörku sem selur vandaðan mexíkóskan skyndibita. Tveir staðir eru í Árósum en þriðji staðurinn var opnaður nýlega, að þessu sinni í Álaborg. 

Þeir Guðmundur Óskar Pálsson og Helgi Kristinn Halldórsson kynntust í meistaranámi í viðskiptum í Árósum og ákváðu að sameina hugvit sitt og reynslu og opna keðju veitingastaða, en Helgi er einnig lærður kokkur. Þeim félögum fannst vanta í dönsku flóruna góðan mexíkóskan skyndibitastað þar sem áhersla er lögð á ferskan mat unninn á staðnum, og allt frá grunni.

„Við opnuðum fyrsta staðinn í janúar 2015 í Árósum. Þessu var afskaplega vel tekið þannig að við opnuðum annan fyrir ári. Nú búin að opna þriðja staðinn, í Álaborg. Við erum að færa út kvíarnar og erum að horfa til þess að opna í fleiri borgum í Danmörku og horfum m.a. til Kaupmannahafnar,“ segir Guðmundur. Staðurinn í Álaborg virðist falla í kramið og löng biðröð myndaðist fyrir utan á opnunardeginum fyrir rúmri viku.

Helgi Kristinn Halldórsson er lærður kokkur og töfrar fram mexíkóska …
Helgi Kristinn Halldórsson er lærður kokkur og töfrar fram mexíkóska rétti á Chido Mexican Grill.

Mexíkómatur í Kaliforníustíl

Guðmundur segir að þeir félagar hafi strax ákveðið að hafa mikil gæði á matnum. „Þetta er skyndibiti en við búum allt til á staðnum á hverjum degi og gerum allar sósur frá grunni og hægeldum kjötið. Þannig það er meira lagt í þetta en venjulegan skyndibita.“

Þú ert Íslendingur í Danmörku að selja mexíkóskan mat. Af hverju?
„Það var lítið um hann, eiginlega ekkert um mexíkóskan skyndibita hér,“ segir hann og útskýrir að þeir hafi báðir búið í Bandaríkjunum sem hafi haft áhrif á hvers konar Mexíkómat þeir elda.

„Þetta er mexíkóskur skyndibiti í smá Kaliforníustíl.“

Eru Danirnir vitlausir í þetta?
„Já, það gengur vel og nú erum við að opna okkar þriðja stað. Það er mikið að gera á báðum stöðunum í Árósum,“ segir Guðmundur en mest er um að fólk taki matinn með sér heim.

Hvaðan kemur nafnið Chido?
Guðmundur hlær. „Þetta þýðir kúl á mexíkósku slangri. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá var það bara ein góð google-leit þar sem gúgglað var „cool mexican slang“ og þetta þýðir kúl. Þetta hljómar ágætlega og virkar.“

Á ekkert að opna á Íslandi?
„Við erum alveg að skoða það. Það er erfitt að finna almennilegt veitingahúsnæði niðri í bæ en við erum með augun opin.“

Hvað er besti rétturinn?
„Vinsælast er Holy Guacamole sem er burrító með kjúklingi og miklu guacamole. Ég myndi fá mér El Barrio með hægelduðu nautakjöti og auka guacamole,“ segir Guðmundur og er rokinn, enda í nógu að snúast í veitingabransanum.

Ásdís Ásgeirsdóttir/mbl.is
Pico de Gallo salsa
Fyrir 4-6

12 tómatar (Roma-tómatar góðir í þetta og ef fólk hefur tíma getur verið gott að taka kjötið úr)
2 rauðlaukar
2 bollar fínsaxað kóríander
3 lauf hvítlaukur
1 msk. ólífuolía
½ rauður chili
2 tsk. Cholula hot sauce original
2 tsk. Cholula hot sauce chili garlic
3 tsk. Worcestershire (vegan-útgáfa svo allir geti fengið sér – það er ekki með ansjósum)
1 lime
salt
pipar

Skerið tómata og rauðlauk í fína bita og setjið í skál.

Saxið fínt chilipiparinn og hvítlaukinn og blandið saman við. Setjið næst 2-3 svettur af hvorri Cholula-sósu út í (mikilvægt að nota góða hot sauce) og svo örlítið af Worcestershire-sósu.

Hellið svo ólífuolíu yfir, kreistið lime yfir og smakkað til með salti og pipar.Þetta salsa má nota í ýmsa rétti, eins og Holy Guacamole sem er mjög vinsæll réttur.
Ásdís Ásgeirsdóttir/mbl.is
El Pollo Loco Tacotortilla-kaka (annaðhvort hveiti eða maís)

chipotle maríneraður kjúklingur
Pico de Gallo
romaine-salat
sýrður rjómi
rifinn ostur
sultaður rauðlaukur
kóríander (fyrir þá sem vilja)

Til að útbúa sitt eigið alvöru El Pollo Loco Taco eins og þeir gera hjá Chido er best að byrja á að marínera beinlausan kjúkling í Chipotle adobo-sósu og steikja hann á pönnu.

Næst er að búa til Pico de Gallo (sjá uppskrift) og dreifa því yfir tortilla-köku ásamt eldaða kjúklingnum.

Því næst er bætt ofan á romaine-salati, sýrðum rjóma, rifnum osti og sultuðum rauðlauk. Toppið með kóríander.
Á opnunardaginn í Álaborg fyrir rúmri viku myndaðist strax löng …
Á opnunardaginn í Álaborg fyrir rúmri viku myndaðist strax löng röð. Ásdís Ásgeirsdóttir/mbl.is
Ásdís Ásgeirsdóttir/mbl.is
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert