Þessi morgundrykkur keyrir kroppinn svo sannarlega af stað en það er Guðbjörg Finnsdóttir eigandi G-fit í Garðabæ sem á heiðurinn af þessari uppskrift. Guðbjörg er ekki aðeins vinsæll líkamsræktarþjálfari því uppskriftir hennar hafa verið með þeim vinsælli sem við höfum birt.
G fit græni
1 lúka spínat
1 lúka grænkál
2 cm engifer
2 cm turmerik
1 sellerí stilkur
1 dl mangó frosið
1 dl krækiber eða bláber (berjauppskera frá því í sumar)
2 ferskar döðlur
1/2 til heil gúrka
1 tsk macaduft (val)
1 tsk hveitigras (val)
1 dl vatn
1 dl góður safi t.d. goji berja safi
Allt í öflugan blandara