Langar þig í nýtt bikiní? Elskar þú pizzu? Langar þig kannski í bikiní úr pizzu? Ef svarið er jákvætt þá getum við glatt þig með því að á morgun gefst einstakt tækifæri til að eignast eitt slíkt fyrir aðeins eina milljón króna.
Það er veitingastaðurinn Villa Italian Kitchen sem stendur fyrir uppátækinu en bikiníin verða aðeins í boði þennan eina dag til að fagna alþjóðlega bikinídeginum.
Ástæða þess að bikiníi kostar svona mikið er af því það er sérhannað utan á hvern og einn kaupanda til að það passi fullkomlega.
Uppátækið var auglýst á Facebook-síðu veitingastaðarins og ef þú hefur áhuga á að eignast þitt eigið pi-kini þá geturðu haft samband hér.