Besta pítsusósan

Ég nota gjarnan ferska íslenska dverg basílíku sem fæst víða …
Ég nota gjarnan ferska íslenska dverg basílíku sem fæst víða núna. mbl.is/TM

Góð pítsasósa getur miklu breytt. Þessi er í raun svo góð að hún hentar einnig vel á pasta eða ofan á ofnbakaðar kjúklingabringur.

Besta pítsusósan

1 dós niðursoðnir tómatar
1 lítil dós tómatpúrra
1/2 hvitlaukur, geiralaus
2 msk rjómaostur
1/3 búnt ferskt basil
1 msk pítsakrydd eða ítölsk kryddblanda
1/3 tsk salt 
1/4 tsk pipar

Allt sett í blender nema rjómaosturinn. Sósa er svo hituð hægt upp í potti og rjómaosturinn látinn blandast saman við. Saltið og piprið eftir smekk.

mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert