Tacos með tælenskum kjúklingi

Taco er uppáhalds matur margra.
Taco er uppáhalds matur margra. mbl.is/ljufmeti.com

Svava Gunnarsdóttir matarbloggari fer á kostum með þessari uppskrift. „Tacos er jú bara svo gott og þessi útfærsla er æðisleg tilbreyting frá hinu hefðbundna tacos. Kjúklingurinn er svo bragðgóður og með hnetunum, avokadó, kóriander og sýrðum rjóma verður rétturinn ómótstæðilegur. Ég tvöfaldaði uppskriftina fyrir okkur 5 og það kláraðist allt. Þetta var bara svo gott að það var ekki hægt að hætta að borða!“

Tacos með tælenskum kjúklingi (uppskrift fyrir 3-4)

  • 2 kjúklingabringur
  • 1 kjúklingateningur (kraftur)
  • 1 líter vatn

Marinering

  • 1/2 dl appelsínudjús
  • 1/2 dl Hoisin sósa
  • 1 tsk hunang
  • 1 kjúklingateningur (kraftur)
  • 1 tsk hvítvínsedik
  • 1/2 chillí, hakkað (hafið fræin með ef þið viljið hafa sterkt, sleppið þeim annars)
  • 1 msk sojasósa
  • 1/2 lime

Meðlæti

  • laukur
  • paprika
  • tortillur
  • ferskt kóriander
  • avokadó
  • vorlaukur
  • kasjúhnetur (gott að þurrsteikja þær og hella síðan smá sojasósu yfir undir lokin)
  • sýrður rjómi

Byrjið á að setja vatn í pott og láta suðuna koma upp. Bætið kjúklingateningi og kjúklingabringum í pottinn og látið sjóða við vægan hita í 15 mínútur. Á meðan kjúklingurinn sýður er marineringin útbúin. Hrærið öllum hráefnunum í marineringuna saman. Þegar kjúklingurinn er tilbúinn er hann rifinn niður og settur út í marineringuna.

Skerið lauk og papriku í strimla. Hitið olíu á pönnu og steikið þar til mjúkt og laukurinn hefur fengið smá lit, það tekur um 8-10 mínútur (passið að hafa ekki of háan hita). Takið af pönnunni og leggið til hliðar. Steikið kjúklinginn á sömu pönnu (óþarfi að þrífa hana á milli) þar til marineringin er orðin þykk og klístruð.

Hitið tortillurnar örlítið og berið fram með kjúklingnum, grænmetinu, kóriander, vorlauk, avokadó, kasjúhnetum og sýrðum rjóma.

Svava er höfingi í eldhúsinu.
Svava er höfingi í eldhúsinu. mbl.is/ljufmeti.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert