Djúsí brauðstangir á mínútum

Fljótlegt og virkilega gott.
Fljótlegt og virkilega gott. mbl.is/Ljufmeti.com

Svava Gunnars, matarbloggari á ljufmeti.com, veit alveg hvernig það er að langa í eitthvað djúsí. „Það hljóta allir að kannast við að langa í eitthvað gott en vita ekki hvað það á að vera. Að finnast ekkert vera til en nenna ekki út í búð. Svo ekki sé minnst á sísvanga unglinga sem virðast botnlausir þegar kemur að mat.

Það tekur enga stund að útbúa þær og það er einfalt að eiga hráefnin heima því þau geymast vel. Þær eru auðvitað frábært meðlæti með pizzum en duga líka vel einar og sér. Það má síðan poppa brauðstangirnar upp með góðri sósu, t.d. pizzasósu, piparostasósu eða jalapenosósu. Súpergott!

Hvítlauksbrauðstangir (uppskrift frá Sugarapron)

  • tilbúið pizzadeig
  • 1 msk. smjör, brætt
  • 1 hvítlauksrif, fínhakkað
  • 1/2 bolli rifinn mozzarella
  • 1 msk. parmesan
  • 1 msk. þurrkuð basilika
  • salt og pipar eftir smekk

Hitið ofn í 220°. Hrærið brætt smjör og hvítlauk saman í skál og penslið yfir pizzabotninn. Stráið osti og kryddum yfir botninn. Skerið pizzabotninn í stangir en takið þær ekki í sundur. Bakið í 10-12 mínútur eða þar til osturinn hefur bráðnað og fengið fallegan lit. Skerið aftur í brauðstangirnar til að taka þær í sundur. Berið heitar fram eins og þær eru eða með sósu að eigin vali.

Það má síðan poppa brauðstangirnar upp með góðri sósu, t.d. …
Það má síðan poppa brauðstangirnar upp með góðri sósu, t.d. pizzasósu, piparostasósu eða jalapenosósu. mbl.is/ljufmeti.com
mbl.is/ljufmeti.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert