Jennifer Aniston kvartar vart yfir þessu eldhúsi

Eldhúsið í húsnæðinu sem Jennifer Aniston og Justin Theroux leigja.
Eldhúsið í húsnæðinu sem Jennifer Aniston og Justin Theroux leigja. mbl.is/Trulla.com

Það er alltaf pínulítið áhugavert að sjá hvernig hinn helmingurinn býr, þá ekki síst þegar peningar eru engin fyrirstaða og öll heimsins gæði eru í boði. Er viðkomandi í hlýja sveitastílnum, eru litir málið eða skal það kalt og stílhreint?

Eldhús geta nefnilega sagt svo ógnarmargt um viðkomandi og því verður að viðurkennast að þetta eldhús er kannski ekki eins og maður hefði ímyndað sér eldhúsið hjá Jennifer Aniston. En það skal hafa í huga að þetta er leiguhúsnæði og líka að hvað í ósköpunum vitum við um hvað Jennifer Aniston finnst flott.

En eldhúsið er flott og sjúklega stílhreint. Eyjan er klædd með málmi og takið eftir því hvernig gashellurnar eru felldar inn í hana. Frekar flott og afskaplega vandað.

Hér er hægt að sjá fleiri myndir af húsnæðinu en við létum okkur nægja eldhúsið enda höfum við bara áhuga á þeim... svona þannig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert