[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Pavlyuchenko gæti fengið ákúrur frá Harry Redknapp fyrir ummæli sín.

Pavlyuchenko gæti fengið ákúrur frá Harry Redknapp fyrir ummæli sín. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 27.2.2009 | 15:01

Pavlyuchenko dreymir um að spila fyrir Manchester United

Roman Pavlyuchenko, rússneski framherjinn í liði Tottenham, segist gjarnan vilja spila undir stjórn Sir Alex Ferguson í Manchester United, en orð hans koma eins og þruma úr heiðskíru lofti, rétt fyrir úrslitaleik liðanna í deildabikarnum.

„Það væri rangt af mér að eiga ekki þennan draum. Enska deildin er ástæðan fyrir því að maður spilar fótbolta. Og Man. Utd er efst í þeirri deild. Þegar fyrsti draumur þinn rætist, verður þú að finna nýjan draum,“ sagði Pavlyuchenko.

Hann talaði þó ekki vel um Dimitar Berbatov, sem fór frá Tottenham til Manchester United. „Robbie Keane fór en kom aftur og fékk lof fyrir. Ef Berbatov myndi koma aftur fengi hann ekki góðar móttökur. Ég heyrði að hann væri hrokafullur uppskafningur, sem grýtti skítugum skóm sínum til mannsins sem sér um skófatnað liðsins, með frekju og heimtaði að hann þrifi þá fyrir sig. Engum líkar við þannig fólk. En samt, hann spilar nú fyrir Manchester United,“ sagði Pavlyuchenko, sem áður hefur komið sér í fréttirnar fyrir hreinskilna skoðun sína á breskum mat og konum, en honum þótti hvortveggja álíka girnilegt og kúamykja.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars