Íþróttir | mbl.is | 11.11.2009 | 20:00
Bosingwa frá keppni í þrjá mánuði
José Bosingwa, portúgalski varnarmaðurinn sem leikur með Chelsea, hefur verið skorinn upp á hné og verður frá keppni næstu þrjá mánuðina af þeim sökum.
Bosingwa hefur verið frá keppni síðan um miðjan október en í vikunni varð ljóst að hann þyrfti að fara í aðgerðina.
Hinsvegar tilkynnti Chelsea í dag á vef sínum að enski landsliðsbakvörðurinn Ashley Cole þyrfti ekki að fara í aðgerð vegna meiðsla á sköflungi sem hann glímir við.
© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin
Til baka







Senda inn efni
