[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Roman Pavlyuchenko fær lítið að spila á White Hart Lane.

Roman Pavlyuchenko fær lítið að spila á White Hart Lane. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 11.11.2009 | 23:05

Rússinn vill burt frá Tottenham

Rússneski knattspyrnumaðurinn Roman Pavlyuchenko ætlar að krefjast þess að vera seldur frá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham Hotspur.

Rússneska íþróttadagblaðið Sport Express hafði þetta eftir honum í dag. „Ég vil komast í burtu. Ég hef setið á varamannabekknum og það hefur kostað mig sætið í rússneska landsliðinu. Ég vil spila, ekki sitja á bekknum," sagði sóknarmaðurinn sem hefur aðeins komið við sögu í sex leikjum Lundúnaliðsins á þessu tímabili.

Hann hefur mátt víkja fyrir þeim Robbie Keane og Jermain Defoe, sem Harry Redknapp knattspyrnustjóri stillir helst upp sem framherjapari sínu. Peter Crouch, enski landsliðsmiðherjinn, er næstur í goggunarröðinni og því djúpt á því að Redknapp stilli Pavlyuchenko upp í byrjunarliði sínu.

„Stjórinn sagðist í upphafi tímabilsins þurfa á fjórum framherjum að halda en nú segir hann að þrír dugi sér vel. Ég er sá fjórði og það er því augljóst að ég verð að koma mér burt. Það eina sem gæti komið í veg fyrir það væri of hátt kaupverð, en ég mun krefjast þess að fá að fara. Aðalmálið er að komast að samkomulag sem Tottenham, ég og næsta félag mitt getum öll sætt okkur við," sagði Pavlyuchenko.

Hann er 27 ára gamall og Tottenham greiddi Spartak Moskva heilar 14 milljónir punda fyrir hann í ágúst á síðasta ári.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars