[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Kieran Gibbs verður með Arsenal gegn Standard.

Kieran Gibbs verður með Arsenal gegn Standard. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 23.11.2009 | 17:57

Gibbs með Arsenal á morgun

Varnarmaðurinn Kieran Gibbs hefur jafnað sig mun fyrr af meiðslum en gert var ráð fyrir og verður í liði Arsenal sem tekur á móti Standard Liege í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.

Gibbs meiddist í leik með 21-árs landsliði Englands á dögunum og fyrst var óttast að hann hefði ökklabrotnað. Síðan kom á daginn að meiðslin  voru mun minni og hann missti af leiknum gegn Sunderland á laugardaginn.

Gibbs hefur að undanförnu leyst Gael Clichy af hólmi í stöðu vinstri bakvarðar en Clichy er  frá keppni í bili vegna bakmeiðsla.

Auk Clichy eru þeir Robin van Persie, Nicklas Bendtner, Abou Diaby, Johan Djourou og markvörðurinn Lukasz Fabianski frá keppni vegna meiðsla hjá Arsenal.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars
Þriðjudaginn 16. mars