[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Fimm marka maðurinn Jermain Defoe sýst hér á risaskjá eftir stórsigur Tottenham á Wigan í gær.

Fimm marka maðurinn Jermain Defoe sýst hér á risaskjá eftir stórsigur Tottenham á Wigan í gær. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 23.11.2009 | 15:53

Leikmenn Wigan endurgreiða stuðningsmönnunum

Leikmenn Wigan hafa boðist til að endurgreiða þeim stuðningsmönnum félagsins sem ferðuðust til London í gær til að fylgjast með liðinu í leiknum gegn Tottenham á White Hart Lane. Tottenham slátraði gestunum frá Wigan en lokatölur urðu, 9:1.

Mario Melchiot varnarmaður Wigan segir að úrslitin hafi verið niðurlægjandi fyrir alla þá sem að félaginu standa og að leikmenn liðsins séu reiðbúnir að greiða þann kostnað sem stuðningsmenn Wigan lögðu út fyrir til að fylgja liði sínu.

,,Okkur finnst við hafa svikið okkar stuðningsmenn og við viljum endurgreiða þeim fyrir hollustuna sem þeir sýna okkur. Við vorum niðurlægðir og það er ekki annað hægt en að koma á móts við okkar dyggu stuðningsmenn. Nú verðum við bara að taka þennan leik út af dagskránni, vera einbeittir á æfingunum í vikunni og mæta öflugir til leiks á laugardaginn,“ segir Melciot.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 13. mars
Föstudaginn 12. mars
Fimmtudaginn 11. mars