[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Fernando Torres.

Fernando Torres. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 23.11.2009 | 13:52

Torres varð eftir í Liverpool

Fernando Torres, framherji Liverpool, varð eftir í Liverpool og fór ekki með liðinu til Ungverjalands eins og reiknað hafði verið með en Liverpool mætir ungverska liðinu Debrecen í riðlakeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld. Sömu sögu er að segja um Hollendinginn Ryan Babel sem meiddist í leiknum gegn Manchester City á laugardaginn.

Torres er enn að jafna sig af nárameiðslum en hann hefur verið fjarri góðu gamni í síðustu tveimur leikjum Liverpool og hætt er við því að hann missi einnig af leiknum gegn Everton um næstu helgi.

Ekkert nema sigur dugar Liverpool á morgun til eiga einhverja möguleika á að komast í 16-liða úrslitin. Fari hins vegar svo að Fiorentina vinni sigur á Lyon annað kvöld er ljóst að Liverpool kemst ekki áfram.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars