Allardyce fór í hjartaþræðingu
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, gekkst í dag undir hjartaþræðingu. Hann verður því ekki við stjórnvölinn þegar Blackburn mætir Stoke í ensku úrvalsdeildinni í röð og missir þar með af þriðja leiknum í röð vegna veikindanna.
Allardyce, sem er 55 ára gamall, hefur þó haft hönd í bagga með liðsvalinu frá því hann var lagður inn á sjúkrahús en aðstoðarmaður hans, Neil McDonald, hefur stýrt liðinu.
„Ég er viss um að hann verður kominn á ferðina síðar í dag og losnar vonandi af sjúkrahúsinu um helgina. Ef hann þarf eitthvað að jafna sig verður leikurinn á miðvikudag væntanlega ekki í myndinni hjá honum en við reiknum með honum til starfa í næstu viku," sagði McDonald við BBC.
Til baka







Senda inn efni
