[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Íslandsmeistaramótið í sundi
Petr Cech gómar boltann þrátt fyrir mikla tilburði hjá William Gallas í leik liðanna í gær.

Petr Cech gómar boltann þrátt fyrir mikla tilburði hjá William Gallas í leik liðanna í gær. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 13:49

Cech: Arsenal er úr leik

Petr Cech lék sinn 200. leik með Chelsea og hélt hreinu í 100. skiptið þegar lið hans lagði Arsenal, 2:0, í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær. Cech telur að með sigrinum sé Arsenal úr leik í baráttunni um enska meistaratitilinn.

„Þetta gat ekki verið betra. Við unnum mikilvægan sigur, ég hjálpaði til með því að verja á mikilvægum augnablikum, og toppurinn var að halda hreinu í 100. sinn. Ég held að við höfum gert möguleika Arsenal á titlinum að engu með þessum sigri. Það verður erfitt fyrir þá að brúa níu stiga mun þegar komið er þetta langt fram á tímabilið, sérstaklega miðað við það erfiða leikjaprógramm sem þeir eiga eftir," sagði Cech á vef Chelsea í dag.

Hann sagði leikinn líka mikilvægan vegna þess að United hafði unnið Portsmouth 5:0 á laugardag og komist á toppinn um stundarsakir.

„Það var mikilvægt að svara strax 5:0 sigrinum hjá United. Með jafntefli hefði United haldið toppsætinu á betri markatölu, og þetta gerir okkar sigur enn verðmætari. Við stóðumst álagið. Nú er það stöðugleikinn sem hefur allt að segja það sem eftir er til vorsins. Liðið sem tapar færri stigum héðan í frá verður meistari," sagði Cech.

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars