[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Sænski landsliðsmaðurinn Erik Edman.

Sænski landsliðsmaðurinn Erik Edman. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 11:41

Edman hættur hjá Wigan

Sænski knattspyrnumaðurinn Erik Edman hefur verið leystur undan samningi við enska úrvalsdeildarfélagið Wigan. Hann er búinn að semja við sitt gamla félag Helsingborg og leikur með því í sænsku úrvalsdeildinni á komandi tímabili þar.

Edman, sem er 31 árs vinstri bakvörður, hefur aðeins spilað fjóra leiki í úrvalsdeildinni í vetur. Hann missti stöðu sína eftir að Aaron Lennon lék hann grátt í 9:1 sigri Tottenham á Wigan í nóvember og hefur aðeins einu sinni komið við sögu síðan. Þá kom hann inná gegn Manchester United og mátti þola annan skell, 0:5.

Edman kom til Wigan í ársbyrjun 2008 en náði aldrei að festa sig í sessi hjá félaginu. Hann lék áður með Rennes i Frakklandi, Tottenham í Englandi, Heerenveen í Hollandi, AIK í Svíþjóð, Karlsruhe í Þýskalandi og Tórínó á Ítalíu, en hafði spilað fimm fyrstu ár ferilsins í meistaraflokki með Helsingborg. Edman á að baki 57 landsleiki fyrir Svíþjóð og hefur skorað eitt mark.

Ljóst er að varnarmaðurinn ætlar sér að ljúka ferlinum með Helsingborg því hann hefur skrifað undir fimm ára samning við félagið.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 16. mars
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars