Mancini bjartsýnn á að City nái meistaradeildarsæti
Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City er mjög bjartsýnn á að sínir menn nái einu af fjórum efstu sætunum í ensku úrvalsdeildinni þrátt fyrir að hafa séð lið sitt tapa tveimur af þeim sex leikjum sem hann hefur stýrt því í.
City tapaði fyrir Hull á laugardaginn og Mancini hefur þar með tapað jafnmörgum leikjum og Mark Hughes sem var látinn víkja fyrir Ítalanum.
,,Ég er mjög bjartsýnn á að við náum topp fjórum. Við höfum verið óheppnir hvað varðar meiðsli leikmanna en nú eru þeir flestir að jafna sig og þá hef ég engar áhyggjur,“ sagði Mancini en City tekur á móti Bolton á morgun og sækir Stoke heim í næstu viku.
,,Ég held að Tottenham, Liverpool, Aston Villa, Manchester City og Arsenal séu liðin fimm sem berjist um tvö sæti í hópi fjögurra efstu og við eigum góða möguleika.
Til baka







Senda inn efni
