[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
 

Spurt er

Hvert af þessum 10 efstu liðum 1. deildar viltu helst sjá í úrvalsdeildinni næsta vetur?

STAÐA - ÚRSLIT

Stuðningsmenn

Tenglar

Matthew Upson, til hægri, vill komast í Meistaradeild Evrópu.

Matthew Upson, til hægri, vill komast í Meistaradeild Evrópu. Reuters

Íþróttir | mbl.is | 8.2.2010 | 11:48

Upson seldur frá West Ham í sumar

David Sullivan, annar aðaleigenda enska knattspyrnufélagsins West Ham, segir að það sé óumflýjanlegt að selja miðvörðinn öfluga Matthew Upson frá félaginu í sumar.

„Ef við fáum gott verð fyrir hann, verðum við að selja hann. Upson vill gera lokatilraun til þess að spila í Meistaradeild Evrópu og það er ekki hægt að standa í vegi fyrir honum. Nú er hann á hátindinum sem miðvörður en á varla nema 4-5 ár eftir á toppnum og það er því ekki svo hræðilegt að selja hann," sagði Sullivan við Sport.co.uk í dag.

Upson hefur verið sterklega orðaður við sitt gamla félag, Arsenal, en þar var hann í sex ár. Upson náði þó aðeins að spila 35 deildaleiki á þeim tíma og fór til Birmingham árið 2003. Þaðan lá leiðin síðan til West Ham árið 2007 og Upson hefur nú spilað 200 deildaleiki með þessum tveimur liðum, ásamt 18 landsleikjum fyrir Englands hönd.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Íþróttir / Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Mánudaginn 15. mars
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars