Fimmtu eigendur í augsýn hjá Portsmouth
Peter Storrie, framkvæmdastjóri enska knattspyrnufélagsins Portsmouth, hefur staðfest að nýr eigandi, sá fjórði á þessu tímabili, sé þegar kominn með nýjan kaupanda í sigtið, sem yrði þá sá fimmti til að eignast Portsmouth frá síðasta sumri.
Kaupsýslumaðurinn Baram Chainrai frá Hong Kong keypti 90 prósent í félaginu í síðustu viku en gerði það strax á þeim forsendum að hann ætlaði aðeins að vera eigandi þess í skamman tíma. Storrie sagði við The Times í dag að viðræður við mögulegan nýjan eiganda væru þegar komnar í gang.
Krafa frá breskum skattayfirvöldum um að Portsmouth verði tekið til gjaldþrotaskipta verður tekin fyrir á morgun og Storrie kvaðst vongóður um að samningar um annað tækjust. „Ef Skatturinn kemur félaginu á kné fær hann ekkert í sinn hlut og það getur ekki verið lausn á neinu," sagði Storrie, sem gaf til kynna að samningar við lánardrottna væru í burðaliðnum.
Sú staða gæti komið upp á morgun að Portsmouth yrði sett í greiðslustöðvun, fyrst félaga í efstu deild í Englandi frá upphafi, og þá yrðu dregin af því 10 stig. Þar með yrðu möguleikar liðsins á að halda sér í deildinni nánast að engu orðnir því það er þegar sjö stigum frá því að komast úr fallsæti.
Hermann Hreiðarsson og samherjar hans hjá Portsmouth hafa ítrekað mátt bíða eftir því að fá greidd laun á þessu keppnistímabili.
Til baka







Senda inn efni
